Skinfaxi - 01.05.1943, Page 82
84
SKINFAXI
um meShöndlun ungbarna. Þörf ábending lil þeirra, sem meS-
höndla hvítvoSunga. Þá koma kaflar varSandi töskuhurS skóla-
barna og kyrrsetur þeirra viS nám i baklausum eSa bak-
slæmum sætum, og viS misjöfn borS. AS lokum eru settar
fram margskonar æfingar í sætum, á gólfi, liggjandi og stand-
andi. Ilöfundurinn kemur hér fram meS stafæfingar i fyrsta
skipti fyrir ísl. almenning. Margskonar sköft eru á íslenzk-
um heimilum, svo aS handhægari tækja er vart hægt aS gripa
til. MeS stöfunum eru gerSar áhrifarikar æfingar, sem jafn-
ast á viS æfingar viS rimla í fimleikasal. MeS þessum staf-
æfingum má segja, aS rimlar séu komnir inn á hvert íslenzkt
heimili. Barnakennararnir íslenzku voru viSbragSssnarir, er
leikfimi var gerS aS skyldunámsgrein í skólunum. Á 3 vetr-
um hækkaSi hundraSstala þeirra skólahverfa, sem láta kenna
líkamsæfingar í skólum úr um 30% i 76%. ASstaSan til æf-
inga i sumum kennslustöSunum er slæm, eSa réttara sagt
ónothæf, en samt hafa margir kennaranna lagt þessa örSug-
leika aS velli með ýmsum ráðum, t. d. sett fimleikaæfing-
ar fyrir til heimanáms, cflir að hafa sýnt nemendum þær.
Síðan hafa þeir hlýtt einum eða tveimur á dag yfir æfing-
arnar og leiðrétt það, sem miSur fór, og er 5—G æfingar voru
öllum tamar, var farið með allan hópinn út á hlað eða tún
og æfingarnar teknar þar. Aðrir kennarar hafa tekið upp
æfingar í sætum.
Þessum áhugasömu kennurum, sem eru ávallt að leita að
ráðum til þess að endurbæta og fullkomna kennslu sína, er
bók Jóns Þorsteinssonar kærkomin handbók.
í seinasta kafla bókarinnar setur höfundur fram nokkrar
æfingar til iðkana daglega fyrir eldra fólk. Hér er „tónninn
gefinn“ eins og J. Þ. hefir áður gefið hann í bréfum bréfa-
skóla síns og bókinni Miillers-æfingar.
Nú er okkar hinna að taka undir, og góðir ungmennafél.,
sem vilja stuðla að líkamsrækt, veita þvi máli á engan hátt
betri stuðning cn þann, að iðka daglega leikfimi sjálfir. Það
er enginn að tala um erfiðar þjálfunaræfingar eða hamfarir
stökka, heldur hægar liðkunar- og örfunaræfingar til mót-
spyrnu kölkunar og veiklunar vöðvanna..
Góðir ungmennafélagar! Kaupið og lesið þessa þörfu bók.
Eftir lesturinn hafið ])ið nánari gætur með hinum vaxandi
líkömum þjóðarinnar og ræktið ykkar eigin vöxt og eflið
vellíðan ykkar. Þ. E.
Félagsprentsmiðjan hd".