Skinfaxi - 01.04.1950, Page 9
SKINFAXl
9
Fimleikaflokkur drengja.
Kennari Guðmundur Þórarinsson.
— Varaformaður er Sveinn Kristjánsson, ritari
Steinvör Sigurðardóttir, gjaldkeri Árni Theódórsson,
v.-gjaldkeri Gunnar Snorrason og meðstjórnandi Grim-
ur Norðdahl. Sömuleiðis eigum við fulltrúa í ýmsum
nefndum, þ. á. m. er Stefán Ól. Jónsson í stjórn l.B.R.
—- Hvað viltu svo að lokum segja mér um sjálft
unga fólkið, sem safnazt hefur í félagið? Hvei’nig hefur
þér líkað að starfa með því, og hvaða trú hefurðu á
framtíð félagsins? Eins væri fróðlegt að vita, hvort
þetta unga fólk er alið upp hér í borginni eða hefur
einkum flutzt að á seinni árum.
— Mér finnst ánægjulcgt að fá tækifæri til að svara
þessum spurningum. Mér fellur ágætlega við félagana,
sem yfirleitt eru mjög ungt fólk, og eins og ég sagði
áðan, er þess nú farið að gæta í starfsemi félagsins, að
þetta fólk er að vaxa og þroskast. Eins hafa félaginu
hætzt ágætir kraftar, sem að eru fluttir, og eru sumir