Skinfaxi - 01.04.1950, Qupperneq 10
10
SKl.NFAXl
þeirra mjög virkir í forystuliðinu. Unga fólkið sýnir
mikinn og skemmtilegan áhuga, og það er ánægjulegt
að vinna með því, enda vildi ég fyrir mitt leyti helzt,
að allir gæti tekið þátt í störfunum, þá dreifist ábyrgð-
in og hæfileikar einstaklinganna koma í ljós og fá að
njóta sín. Þetta unga fólk er úr ýmsum stéttum og
hefur alizt upp við hin ólikustu kjör. Flest er uppalið
hér í Reykjavík og næsta nágrenni. Eins og ég gat
um áðan, höfum við lagt mest kapp á að ná í vaska
unglinga. Á þann hátt hefur félagið viljað ala sér upp
trausta og góða félaga í framtíðinni, hvort sem áhuga-
mál þeirra eru íþróttir eða annað. Félagið stendur opið
öllu æskufólki, sem efla vill heilbrigðan félagsskap
og betra skemmtanalíf og ala sjálft sig upp i góðum
félagsanda, sannri íþróttamennsku, þegnskap og dreng-
lyndi.— Sérstök ástæða finnst mér að taka það fram, þar
sem lesendur Skinfaxa eru dreifðir svo vítt um byggð-
ir landsins, að U.M.F.R. vill kappkosta að hafa góð
tengsl og kynni við önnur ungmennafélög, og dvelji
ungt fólk úr öðrum umf. hér í borginni um stundar-
sakir eða lengur, er það að sjálfsögðu velkomið til
starfa og leika í félaginu. Er það von okkar, að innan
vébanda þess geti það fundið verkefni við sitt hæfi,
sjálfu sér til þroska og uppbyggingar. En það er í raun-
inni hlutverk allra æskulýðsfélaga að efla þroska ein-
staklinganna við skemmtileg og nytsöm viðfangsefni,
og skila þannig þjóðfélaginu batnandi mönnum. Hitt
er svo annað mál, hve langt verður náð í einstökum
tilfellum í þessum efnum, og fer það alla jafna eftir
ýmsum aðstæðum, efnum og ástæðum, þótt viljinn
sé fyrir hendi.
Þegar hér er komið, þaklta ég Stefáni kærlega fyrir
viðtalið og allar upplýsingarnar um U.M.F.R. og læt
i Ijós óskir um giftudrjúgt og heillaríkt starf í fram-
tiðinni. Ætla ég, að ungmennafélagar um land allt