Skinfaxi - 01.04.1950, Qupperneq 52
52
SKINFAXI
b. Að temja sér að beita starfskröftum sínum í félagi og
utan félags
c. Að reyna af fremsta megni að styðja, viðhalda og efla allt
það, sem þjóðlegt er og rammíslenzkt. Sérstaklega skal leggja
stund á að fegra og lireinsa móðurmálið.
Tilgangi sínum hugsar félagið að ná með því að halda fundi,
þar sem fram skulu fara fyrirlestrar, er haldnir séu af félags-
mönnum eða þar til fengnum mönnurn, umrœður, upplestur,
söngur og annað það, sem að líkamlegri og andlegri eflingu
lýtur.
4. gr. Félagsinenn geta þeir einir orðið, sem treysta liand-
leiðslu og almætti guðs, jafnt karlar sem konur, eru bindindis-
menn og vilja af lifi og sál æfa krafta sína til starfs fyrir fóst-
urjörðina. Yngri menn en 15 ára fá ekki inntöku i félagið.
5. gr. Árgjald félagsins skal vera 1 kr. f. karlmann, 0,50 kr.
f. konur.
6. gr. Félagið skal gefa þeim félögum sinum, er þess óska,
færi á að taka þátt í söng, sundi, leikfimi, glimum og öðrum
íþróttum að svo miklu leyti sem þvi er unnt.
Stjórnina skipa þrír menn, formaður, ritari og féhirðir,
kosnir til eins árs í senn. Formaður er sjálfkjörinn fundar-
stjóri. Lágmarkstala funda 6 á ári.
Sambandsskuldbinding Ungmennafélags íslands:
Vér undirritaðir lofum því og leggjum við drengskap vorn,
að meðan vér erum í félagi innan þessa sambands, skulum vér
eigi neyta neinna áfengra drykkja, né valda þvi vísvitandi að
öðrum séu þeir veittir .Vér skulum vinna af alhug að heill
þessa félagsskapar, framförum sjálfra vor, andlega og líkam-
lega og að sæmd og þrifum þjóðar vorrar, i öllu þvi, sem þjóð-
legt er, gott og gagnlegt. Lögum þessum og fyrirskipunum sam-
bandsins, viljum vér í öllu hlýða og leggja fram krafta vora
sérplægnislaust, til allra þeirra starfa, er oss kynni að verða
falið að inna af höndum fyrir sambandið.
Stofnendur.
Undir þessa skuldbindingarskrá voru rituð 30 nöfn á stofn-
fundi félagsins 28. nóv. 1909. Af þessum hópi eru 9 utansveit-
armenn, sem þarna gerðust stofnendur félagsins, voru allir
nemendur í ungmennaskólanum á Núpi. Var það og nokkuð
lengi siðan, að nemendur þar, sem ekki voru í öðrum ungmenna-
félögum, gengu í félagið og störfuðu i því á meðan þeir dvöldu
i sveitinni við nám. Sumir af þessum félögum tóku mikla tryggð