Skinfaxi - 01.04.1950, Side 53
SKINFAXI
53
við félagið og greiddu skilvíslega gjald sitt til þess árum sam-
an, þótt þeir sökum fjarlægðar gætu aldrei mætt á fundum þess.
Ég hef tekið hér upp stefnuskráratriði úr fyrstu lögum fé-
Jgsins, sömuleiðis sambandsskuldbindingarskrána. Þetta er að
vísu okkur eldri félögunum gamalkunnugt og kært, en síður
liinum yngri, þar sem skuldbindingarskráin er nú ekki lengur
til sem slílv og grundvallaratriðin orðin öðruvísi.
Ég veit, að nú er ekki kveðið eins fast á um algjört bindindi
í félagsskapnum og áður. Var það gert til að ganga á móti
þeim félögum, sem aldrei vildu bindindisheitið og stóðu þess
vegna utan við U.M.F.Í., þó þau kölluðu sig ungmennafélög.
Þá er nú 4. gr. allmjög öðru vísi orðin, og er það ekki lengur
skilyrði fyrir inngöngu i félagsskapinn að viðurkenna, að fé-
Jagsmenn treysti handleiðslu og almætti guðs. Þá þótti þetta
svo mikilsvert atriði, að reyna að hjálpa sér sjálfur með
guðshjálp, að þá væri velfarnaður vis, ef reynt væri í alvöru.
Þá var verið að kveða niður trúna á hjálp og náð jarðneskra
konunga. Menn skyldu einungis treysta á sjálfan sig og að-
stoð konungs konunganna. Trú á mannlega forsjón, þótti þá
úreltur arfur aldanna, sem þröngvað Jiefði verið upp á fáráðan
og fáfróðan lýð i kúgunartilgangi
Stjórn og saga.
Nú verður farið fljótt yfir sögu, er rekja skal starfsferil fé-
lagsins.
Fyrstu stjórn þess skipuðu: Formaður: Björn Guðmundsson
frá Næfranesi, ritari: Jón Friðriksson frá Mýrum, féhirðir:
Torfi Hermannsson frá Fremstuliúsum.
Björn Guðmundsson má hiklaust telja aðalhvatamann að
því, að Bindindisfélagi Mýrahrepps var breytt i ungmenna-
félag. Hann má því kalla aðalstofnanda félagsins og leiðtoga.
Stjórnaði liann félaginu, sem formaður óslitið til ársloka 1929,
er hann baðst undan endurkosningu, var svo formaður þess á
ný, árin 1932 og 1933, en hætti þá stjórnarstörfum og var þá
ltosinn lieiðursfélagi félagsins. Áður höfðu þeir verið lcosnir
lieiðursfélagar: Kristinn Guðlaugsson, Jón Þórarinsson og
Guðm. Hermannsson. Voru þeir allir meðal stofnenda félags-
ins, og eflaust miklir hvatamenn að stofnun þess. Tveir hinir
fyrsttöldu tóku þó skamrna stund beinan þátt í félagsstarf-
inu, bæði sökum anna og brottflutnings Jóns Þórarinssonar
1912. Kristinn Guðlaugsson helgaði meir starfskrafta sína st.
Gyðu á Núpi, enda þá komin af æskuskeiði, er U.M.F. Mýra-
hrepps var stofnað.