Skinfaxi - 01.04.1950, Blaðsíða 55
SKINFAXI
55
hann drukknaði haustið 1913 ásamt Halldóri B. Jónssyni frá
Mýrum, sem einnig var stofnandi félagsins. Var hann og vel
að manni bæöi andlega og líkamlega og vis til gæfulegs
broska. Hefur þessi sveit sjaldan orðið fyrir meira áfalli, en
þegar þessir ungu menn hurfu héðan svo sviplega.
Torfi Hermannson starfaði i stjórn félagsins, og sem ágæt-
ur félagsmaður þau fáu ár, sem hann dvaldi hér i sveit, eftir
að félagið var stofnað. Er liann einn hinna beztu drengja,
sem sveitin hefur orðið að sjá á bak.
Franklin Guðmundsson frá Mýrum var kosinn gjaldkeri
1912. Fluttist hann úr sveitinni rúmu ári síðar. Var bóndi á
Veðrará í Önundarfirði, lézt 1918 eftir langvarandi vanheilsu.
Ingimar Jóliannesson frá Meira-Garði er kosinn féhirðir
1914, en flyzt úr sveitinni alfari árið eftir. Hefur hann getið
sér ágætan orðstír í öðrum liéruðum sem ungmennafélagi og
æskulýðsleiðtogi, og þótti mikil eftirsjá að honum héðan.
Að Jóni I'riðrikssyni látnum er Bjarni ívarsson á Kotnúpi
kosinn ritari. Hann kom heim af Hvanneyri það vor. Mun
hann liafa verið ritari félagsins óslitið þar til 1920 að hann
fluttist sem bóndi að Álfadal. Hann var ágætur starfsmaður,
traustur og vandvirkur, og lagði æ gott til mála.
Kristján Daðviðsson tekur við af Ingimar, sem féhirðir
félagsins 1915 og gegnir því til 1935, er hann baðst undan þvi
starfi, að árinu 1920 undanteknu, en þá var Guðmundur
Hermannsson féhirðir. Var starf Kristjáns rækt af vand-
virkni og trúmennsku.
Ritarastarfið, er Bjarna ívarssyni leið, tók Jóhannes Da-
viðsson og gegndi þvi til 1930, en þá var hann formaður fé
lagsins næstu tvö árin, en dró sig þá að mestu í hlé frá
félagsstörfum, samhliða Birni Guðmundssyni, enda annir og
annað sem þvi olli, m. a. það, að þá um skeið hafði stjórnin
lengi verið skipuð sömu mönnum ár eftir ár, og þótti þá rétt
að gefa yngri mönnum tækifæri til að reyna starfskraftana
frekar en áður.
Eftir þenna tíma, er mér að mestu ókunn hin innri saga fé-
lagsins, og hér eftir tek ég aðeins upp þá menn sem stýrt
liafa félaginu, án umsagnar um störf þeirra frá minni hálfu.
Formenn félagsins hafa verið: Viggó Natanaelsson á Núpi
1934—-1939, sr. Eiríkur J. Eiríksson Núpi 1939—1942. Brynj-
ólfur Árnason Kotnúpi 1942—1947. Tómas Jónsson, Gili 1947
og síðan.
Ritarar: 1930: Valdimar Össurarson Núpi. 1931—1938: Hauk-