Skinfaxi - 01.04.1950, Page 57
SKINFAXI
57
sjaldan, varla oftar en einu sinni, or?5ið að vísa frá greinum,
vegna klaufsku eða ósæmilegrar hugsunar, og verð ég að
miklast af því fyrir hönd félagssystkina minna.“
Ritsmíðarnar í Viljanum hafa víst ekki bókmenntalegt gildi.
En ég fullyrði að Viljinn hefur skemmt og yljað mörgum, sáð
góðum frækornum, sem e. t. v. hafa spirað og borið ávöxt
á hljóðlátan hátt. Ennþá er Viljinn félagsskapnum til gagns
og ánægju, og svo mun enn verða, ef þrautseigjan varir. Og
hver veit, hvenær upprennandi rithöfundur stígi þar fyrstu
sporin.
Vegavinna.
Þegar á 2. fundi félagsins hefur Björn Guðmundsson
máls á sveitavegum. Hélt hann langa ræðu og lýsti
því live mikið gagn væri að þvi, fyrir menn og skepnur
að hafa góða vegi, og sýndi fram á hve mikil þörf væri á
vegum, þar sem börn þyrftu að ganga langt í skóla.
Víst er, að hafizt var þegar handa með vegagerð haustið
1910, og byrjað við barnaskólann á Lambahlaði, sem þá var
nýreistur. Varð hann strax einn af fundarstöðum félagsins.
Varð það fljótlega að fastri venju, að hver félagsmaður, sem
vildi og gat, legði fram tvö dagsverk á hverju hausti ókeypis.
Var unnið föstudaginn og laugardaginn eftir fyrri leitir,
og gjarnan haldinn félagsfundur, eða komið saman til skemmt-
unar síðara kvöldið. Var þátttakan almenn mjög, ánægja ríkj-
andi, áhugi og gleði yfir verkinu. Sýndu félagsmenn þarna
mikla þrautseigju og óeigingirni Var því vegavinna þessi
framkvæmd á hverju ári, þar til ríkið kom til skjalanna og
vegurinn var tekinn i þjóðvegatölu. Var þá búið að leggja veg
inn að Neðri-Hjarðardal og út að Seli. Munaði allverulega um
þann vegarspotta.
Mest bagaði það framkvæmdum, live illt var með malar-
ofaniburð. Fyrstu 10 árin voru nær ekki til nothæfar kerrur
eða atktygi til í sveitinni. En um 1920 og upp frá því fara
bændur að eignast kerrur, svo innan fárra ára komast þær
á hvert heimili. Bændur lánuðu margir góðfúslega hest og
kerru, eftir að þær voru tiltækar en þó varð malar-ofaniburð-
urinn heldur að sitja á hakanum, vegna þess hve margir unnu
fáa daga, og hægast að koma þeim öllum að verki við undir-
byggingu vegarins. Formaðurinn, Björn Guðmundsson, var að
sjálfsögðu verkstjórinn.
Það má segja, að nú sé búið að byggja utan um og yfir þenna
■veg. En mikið munaði um hann og mikið flýtti það fvrir