Skinfaxi - 01.04.1950, Blaðsíða 64
64
SKINFAXI
Nordens Ungdom.
ÁriÖ 1948 kom út í Danmörku mikið ritverk í þremur stór-
um bindum, sem bar nafnið: Nordens Ungdom. Ritstjóri þess
var Jens Marinus Jensen, formaður danska ungmennasam-
bandsins, sem mörgum íslendingum er nú að góðu kunnur.
Munu ýmsir fulltrúar á siðasta sambandsþingi U.M.F.Í. hafa
séð ritið hjá höfundinum. Ritverk þetta fjallar urn starfsemi
hinna ýmsu æskulýðsfélaga á Norðurlöndum og skrifa í það
leiðtogar æskumanna og ýmsir aðrir þekktir menn frá öllum
Norðurlöndunum.
Jens Marinus Jensen segir i formálanum: „Ritsafn þetta um
norræna æsku segir frá sögu, markmiði og útbreiðslu hinna
ýmsu æskulýðshreyfinga á Norðurlöndum og er samið út frá
þeirri skoðun, að nauðsynlegt sé, að félögin fái tækifæri til
þess að þekkja starfsemi hvers annars, bæði innan einstakra
ianda og milli hinna norrænu þjóða.“
Meðal þeirra, sem i þetta rit skrifa eru: Folke Bernadotte
greifi, dr. Hal Koch, prófessor Manfred Björkquist biskup,
C. P. 0. Christiansen skólastjóri Grundtvigsskólans i Freder-
riksbergi, Arvo Inkilá magister, formaður Ungmennasambands
Finnlands, Harald "Wiik skólastjóri, einn af leiðtogum sænsk-
finnsku ungmennafélagana, Knut Fortun ritari norsku ung-
mennafélaganna og Jörgen Bukdahl rithöfundur.
Þessir íslendingar eiga greinar í ritinu og um eftirgreind
efni: sr. Eiríkur J. Eiríksson (Ungmennafélag íslands), Bjarni
M. Gislason (íslenzk æska), sr. Friðrik Friðriksson (Kristilegt
æskulýðsstarf á íslandi), Jens Benediktsson (íþróttir á ís-
landi), Brynleifur Tobiasson (Bindindisstarf æskunnar á ís-
landi) og Vilhjálmur Þ. Gíslason (Pólitisk æskulýðsstarfsemi
á íslandi og skólar).
Ritsafn þetta er forkunnar vel út gefið, pappír vandaður,
og fjöldi mynda frá öllum Norðurlöndunum. Það er mjög
eigulegt fyrir alla þá, sem láta sig félagsmál varða i hvaða
mynd sem er. Verð í Danmörku er kr. 75.'00 danskar.
Þeir, sem hefðu liug á því að eignast Nordens Ungdom, ættu
að skrifa U.M.F.Í. sem myndi gera ráðstafanir til þess að út-
vega bókina, eftir þvi sem pantanir bærust.
FÉLAGSPR ENTSMIÐ JAN H.F.