Skinfaxi - 01.11.1952, Blaðsíða 41
SKINFAXI
137
lýðsmót vorið 1953 eða 1954. Kjartan Jóliannesson frá Ás-
um og fleiri söngkennarar liafa starfað lijá U.M.F.Í. Rann-
veig Þorsteinsdóttir hefur annazt leikritasafn U.M.F.Í. Þórð-
ur Pálsson hefur gætt Þrastaskógar og gróðursett margar
plöntur þar. Kristján I-ildjárn hefur leiðbeint Umf. við ör-
nefnaskráningu. Stjórn U.M.F.Í. beitti sér fyrir því, að starfs-
íþróttir væru teknar upp og hlutaðist til um það, að Stefán
ÓI. Jónsson færi til Noregs og kynnti sér þessi mál hjá Norges
Bygdeungdomslag með styrk frá landbúnaðarráðuneytinu.
Jafnframt rakti ritari ýtarlega störf íþróttanefndar ríkisins og
stjórnar félagsheimilasjóðs.
Niðurstöður reikninganna voru þessar:
1949: Tekjur 102.170.19
Gjöld 99.536.38
Tekjuafg 2.633.81
1950: Tekjur 105.891.56
Gjöld 91.911.49
Tekjuafg 13.980.07
1951: Tekjur 116.579.22
Gjöld 112.289.18
Tekjuafg 4.290.04
Eignirnar námu í árslok 1951 kr. 34.091.72. Skuldir voru eng-
ar. — Áritun endurskoðenda var þessi:
„Yið undirritaðir höfum endurskoðað rekstrar- og efna-
hagsreikninga Ungmennafélags íslands árið 1951 og borið þá
saman við fylgiskjöl. Þá höfum við talið sjóðínn og kynnt
okkur aðrar eignir sambandsins. Höfum við engar athuga-
semdir að gera við reikningana og teljum fjárreiður sam-
bandsins í góðu Iagi.“
Reykjavik, 24. júni 1952.
Stefán Runólfsson. Teitúr Guðmundsson.
Einnig voru lagðir fram endurskoðaðir reikningar fyrir
Minningarsjóð Aðalsteins Sigmundssonar. Nam hann í árslok
1951 kr. 31.378.97. Vextir og gjafir hafa ávallt lagzt við höf-
uðstólinn. Hann er að meslu ávaxtaður í Söfnunarsjóði íslands.
II. Iþróttamál.
Frsm. Þorsteinn Einarsson íþróttafulltrúi. Sagði hann, að
íþróttaáhugi íslenzkra Umf. hefði vakið athygli erlendra ferða-
manna. Það, sem Iægi á bak við þennan íþróttaáhuga, væri hinn
sögulegi arfur íslendinga. Æskan hefði drukkið í sig fornsög-
urnar, dáð hetjulif forfeðranna og vildi líkjast þeim. Lýsti
hann siðan helztu framkvæmdum til bættrar aðstöðu við