Skinfaxi - 01.11.1952, Blaðsíða 25
SKINFAXI
121
Ingibjörg Rafnsdóttir og GuSríður Jónsdóttir.
á Egilsstöðum, tóku fjórar stúlkur úr héraðinu þátt 1
þessu. Fjórum borðum var raðað upp í annan enda
borðstofunnar, og upp við vegginn var langborð, sem
á var settur borðbúnaður og annað, sem nota þurfti á
borðin. Ásdís Sveinsdóttir skýrði í bverju sýningin eða
kepnnin væri fólgin. Gert væri ráð fyrir gestaboði í
sveit fyrir 6 menn. Kynnti síðan þátttakendur, sem voru
þessir: Ingibjörg Rafnsdóttir, Gröf í Eiðaþangbá, við
borð nr. 1; hún er nemandi frá húsmæðraskólanum á
Laugum. Guðríður Jónsdóttir, Skeggjastöðum á Jökul-
dal, við borð 2, nemandi frá Blönduósskóla, Fanney
Magnúsdóttir, Dagverðargerði í Hróarstungu, við borð
3. Hún hefur numið að Varmalandi i Borgarfirði. Lilja
Þórarinsdóttir, Hallfreðarstaðahjáleigu í Hróarstungu,
við borð 4, nemandi frá Laugalandsskóla i Eyjafirði.
Þetta eru fjórar fyrstu stúlkurnar, sem þátt taka í
starfsíþróttum ó Islandi.
Þriggja manna dómnefnd var skipuð, sem fylgdist
vandlega með störfum stúlknanna. Er öllum undirbún-
ingi var lokið, bófst keppnin. Stúlkurnar báru leirlau,
skeiðar og bnífapör á borðin og þurrkuðu vandlega af
öllu. Brutu þær saman þurrkurnar með ýmsum að-
ferðum, og fór ])ar bver sína leið. Mun borð nr. 1 hafa