Skinfaxi - 01.11.1952, Blaðsíða 10
106
SKINFAXI
anna og skipuleggja félagsstarfið í heild í samráði við
stjórn félagsins og skrifstofuna í Osló.
Sérstök landsnefnd er starfandi, sem eingöngu sér
um starfsíþróttir og útbýr hún margs konar verkefni
fyrir hin ýmsu félög. Iivert hérað hefur svo nefnd, sem
starfar 1 héraðinu, en heyrir undir landsnefndina.
Félögin starl'a all-sjálfstætt og í líkum anda og ís-
lenzku ungmennafélögin, fyrir utan starfsíþróttirnar.
Þau halda skemmtanir, umræðufundi og námsskeið
ýmis konar, t.d. í dönsum, hljóðfæraleik, leiklist, hjálp
í viðlögum, vefnaði og öðrum hannyrðum kvenna, auk
fjölmargra bóklegra greina, svo að eitthvað sé nefnt.
Segja má, að starfsemin miði öll að því að hjálpa
æskufólkinu til þess að eflast í trú á landið og jörðina,
auka menntun sína bæði bóklega og á verklega sviðinu.
auðvelda því lifstarf sitt og færa því betri lífsskilyrði.
Ég dvaldist á landsmóti félagsins í Gjövík dagana
1. -3. ágúst í sumar og gafst mér þar ágætt tækifæri
til þess að kynnast starfi félagsins. Þar sá ég t.d. í
skýrslum, að. 13055 manns höfðu tckið þátt í 753 kapp-
leikum í ekki færri en 26 greinum starfsíþrótta sl. ár.
Að þessu dæmi er augljóst, að mikið er starfað hjá
Tore Wiig, skipulagsstjóri, við starf á búi sínu.