Skinfaxi - 01.11.1952, Blaðsíða 54
150
SKINFAXI
mínútu, sem byrjuð er, unz verkinu er lokið hjá hverjum
keppenda fyrir sig.
II. Hnappagat gert og hnappur festur.
Tilhögun keppni. Stjórnandi keppninnar sér um, að allt sé
til reiðu, sem til keppninnar þarf, og að þaS sé sem líkast fyr-
ir alla. Þátttakendur skulu koma með fingurbjörg meS sér.
HnappagatiS skal gert á tvöfalt efni (þráSrétt), sem hefur
lögun skyrtulíningar. Er heimilt að skera það (með rak-
vélarblaði) eða klippa það með skserum. Hnappagatið á að vera
hæfilegt fyrir hnappinn og liann festur þannig, að ermaliningin
verði jöfn að framan.
Stigatafla.
Vinnuaðferð ....... 10 • 2 = 20 stig
Vinnuvöndun .... 10 • 2 = 20 —
Tími .............. 10 1 = 10 —
Samtals 50 stig
M a t.
Vinnuaðferð. Hér skal metin vinnuaðferS keppenda. Kepp-
andi skal sitja beinn og óþvingaður viS vinnuna, hafa nál-
þráS hæfilega langan og nota fingurbjörg.
Vinnuvöndun. Hér skal metin stærð hnappagats miðað við
hnapp, staðsetning þess og frágangur allur (s. s. saumað með
jöfnum sporum og hæfilega þéttum miðað við efnið, sem
hnappagatið er gert á) jöfnun jaðra og liorna, ennfremur
staðsetning hnappsins.
Tími. Keppandi sá, sem skemmstan tima hefur fær hámarks
stigafjölda, en siðan er % stig dregið af við hverja mínútu,
sem byrjuð er, unz verkinu er lokið hjá hverjum keppenda
fyrir sig.
III. Smurt brauð.
Tilhögun keppni. Stjórnandi keppninnar leggur til allt efni,
brauð (rúgbrauð, heilhveitibrauð, franskbrauð, hrökkbrauð),
smjör og álegg. Nauðsynlegt er, að áleggið sé fjölbreytt, og
að þátttakendur þekki það.
Hver þátttakandi smyr 6 brauðsneiðar, tvær af nestisbrauði,
tvær á kaffi- eða tebarð og tvær á samkvæmisborð. Nestis- og
kaffiborðsbrauðsneiðarnar eiga að vera heilar sneiðar, en á
samkvæmisborðið „snittur“, (hálfar sneiðar) hringskornar,
ferkantaðar eða með annarri lögun, þar sem skorpur séu af-
skornar.