Skinfaxi - 01.11.1952, Blaðsíða 26
122
SKINFAXI
notað ljósið, l)orð 2 brúðarskóna, borð 3 biskupshúfuna
og borð 4 viftuna eða blævænginn. Að siðustu var lokið
við blómaskreytinguna, sem setti mjög fagran og sér-
stæðan svip á borðin, eins og l)rot munnþurrknanna.
Stúlkurnar luku störfum sínum á 17—23 mín.
Þegar lokið var, hófust umræður meðal áhorfenda um
borðin og sýndist sitt hverjum. Ekki fór það dult, að
borð 4 og borð 2 áttu marga aðdáendur, og það állu
raunar öll borðin. Þá tóku piltarnir eftir því og ræddu
um það, áður en úrskurður dómnefndar kom, að stúlkan
við borð 4 hefði engin óþarfaspor stigið.
Ásdís Sveinsdóttir skýrði því næst borðin og gaf
þeim ákveðin nöfn.
1. borð taldi hún ahnennt gestaborð.
2. væri búið út sem trúlofunarborð.
3. væri fyrir herraboð.
4. páskaborð.
Síðan kom úrskurður dómnefndar. Lagði hún til
grundvallar reglur um þessa keppni, sem birtar eru í
síðasta hefti Skinfaxa. Helztu atriði þeirra eru:
1. Starfsaðferð og fyrirkomulag.
2. Dúkar og þurrkur.
3. Staðsetning diskanna.
Fanney Magnúsdóttir og Lilja Þórarinsdóttir.