Skinfaxi - 01.11.1952, Blaðsíða 71
SKINFAXI
167
FRÉTTIR og FÉLAGSMÁL
Bókmenntakeppni.
í síðasta hefti Skinfaxa var skýrt frá áformum U.M.S. Úlf-
ijóts í Austur-Skaftafellssýslu um bókmenntakeppni milli sam-
bandsfélaganna. U.M.F.Í hefur borizt skýrsla um þessa fyrstu
tilraun. Fór hún eigi fram fyrr en 25. maí og náSist ekki fund-
ur saman þann dag nema i tveimur félögum. Úrslitin urðu
þessi:
Umf. Sindri á Höfn vann keppnina meS 2 stigum. Umf. Visir
í Suðursveit hlaut 1% stig. Spurningarnar voru 13 og allar
úr Pilti og stúlku. Nánari skýring á framkvæmdinni
er þessi: í Sindra voru skráSir 76 félagar. Á sambandssvæS-
inu dvöldu þann dag 57. Af þeim mættu 13 til keppni. Svara
skyldi 13 spurningum. Rétt svör hjá Sindra urSu 113 : 57 t=
2 stig. í Visi voru skráðir 71 féiagi. Á sambandssvæSinu dvöldu
þann dag 67. Til keppni komu 16. Rétt svör hjá Vísi urSu
117 : 67 = 1% stig.
Oheppilegur tími hefur átt drýgsta þáttinn í því, að þátt-
takan varð ekki meiri. Sambandið hefur ákveðið að halda þess-
ari starfsemi áfram, og verður næsta bókmenntakeppni þess
í desember í vetur. Verður þá Njála tekin til meðferðar.
ÁformaS er svo að taka aðra bók fyrir síðari hluta vetrar.
Hér er áreiðanlega athyglisverð starfsemi, sem Umf. ættu að
taka upp. Er hægt að keppa í þessu, hvort sein er innan fé-
iaga, milli einstaklinga eða milli féiaga, svo sem hér hefur
verið gert.
Ungmennafélagar.
Vinnið ötullega að aukinni útbreiðslu Skinfaxa. Fáið unga
fólkið, sem er að ganga í félögin, til þess að gerast áskrif-
endur. Sendið afgreiðslunni jafnóðum nöfn þeirra. Takmarkið
er: Fleiri áskrifendur. Stærra og fjölbreyttara tímarit. Þrjú
hefti koma út árlega og árgangurinn kostar kr. 15.00. Gjald-
dagi er 1. okt.
Bók ungmennafélaga.
Fáein eintök af bók Jens Marinusar Jensen, Ad nordlige Veje,
fást enn lijá U.M.F.Í. Bókin segir frá starfsemi Umf. á Norður-
löndum og heimsókn til þeirra allra. Þar er skemmtilegur
þáttur um ferð höfundar til íslands sumarið 1949 og U.M.F.t.
Verð bókarinnar er kr. 25.00 ísl. auk kostnaðar við póstsend-