Skinfaxi - 01.11.1952, Blaðsíða 5
SKINFAXI
101
Elbek, prestur í Vraa, talaði um listina og lieimilislífið,
Hans Povlsen, rithöfundur, um æskuna og skáldskapinn,
Aage Burholt, bóndi, um danskt æskulýðsstarf til sveila,
Herman Smitt Ingebretsen, ritstjóri í Osló, um sam-
einingu og samvinnu Evrópu, Tage Jessen, ritstjóri í
Flensborg, um Suður-Slésvík. Margir fleiri töluðu, þótt
bér séu ekki nefndir.
Um söngtíma annaðist Aage Ebbesen, kennari í
Skaarup. Flutti hann m.a. erindi um danskan þjóðsöng.
Ennfremur kenndi hann marga danska söngva og
kynnti mörg dönsk tónskáld.
Þjóðdansar voru þarna mikið dansaðir. Frá Finn-
landi var 16 manna dansflokkur undir stjórn hins
j)ckkta kennara frú Helvi Jukarainen. Einnig voru
sýndir norskir og danskir þjóðdansar. Hiklaust má
fullyrða, að finnsku dansarnir vöktu mesta hrifningu,
Norrænir æskulýðsleiðtogar á norræna mótinu.