Skinfaxi - 01.07.1953, Blaðsíða 2
50
SKINFAXI
kynna fyrir félögum á fundunum, hugmyndina um
stofnun leiðbeinendadeildar við Iþróttakennaraskólann
á Laugarvatni og starfsíþróttimar. Líka reyndi ég að
kanna hug félaganna lil þessara mála og fá úr því
skorið, hvaða viðhorf þeir hefðu í þessum efnum.
— Kannske við tölum þá fyrst um leiðbeinendadeild-
ina. Er það ekki hugmyndin um eins konar foringja-
námskeið fyrir ungmennafélögin?
— Jú. Um þetta hefur verið rætt á þingum U.M.F.I.
og raunar gerð um það samþykkt. Hugmyndin er sú,
að við Iþróttakennaraskólann á Laugarvatni verði
komið á fót fjögurra eða fimm mánaða námskeiði fyrir
þá, sem áhuga hafa á leiðbeinendastörfum í félögunum.
Verkefni deildarinnar yrði tvíþætt, annars vegar að
vekja áhuga og skilning á félagsmálum, liins vegar að
l)úa þátttakendur undir að taka að sér forystu og
leiðbeina í félagsstörfum, t. d. í fundarsköpum og
ræðugerð, söng, íþróttum, þjóðdönsum og leikstarfsemi.
— Hvernig voru undirtektir manna?
Yfirleitt góðar. Helztu vandkvæði eru auðvitað
þau, að hér yrði alls ekki um neinn réttindaskóla að
ræða, en nú eru tímar próf- og atvinnuréttindaskóla.
Hins vegar yrðu þessi námskeið einungis fyrir áliuga-
menn, án þess um nokkur réttindi væri að ræða, og þvi
óvíst, hvort æskumenn vildu sækja þau. — Um hitt
voru menn yfirleitt á einu máli, að ungmennafélögun-
um væri mikil nauðsyn á að eignast slíka miðstöð
fyrir foringjaefni, eða eins konar lijarta, sem stöðugt
veitti nýju blóði hugsjóna og nýjunga út i æðanet hreyf-
ingarinnar. — Á Laugarvatni eru einnig liin ákjósan-
legustu skilyrði fyrir þess konar miðstöð. Þar er nú að
rísa upp menntaþorp, þar ætti að verða hægt að fá
góða aðstoð ó mörgum sviðum. Staðurinn er því mjög
heppilegur. Að sjálfsögðu verður að undirbúa þetta mál
vel og hrapa ekki að neinu um framkvæmdir. T. d.
er nauðsynlegt, að námskeiðin séu á þeim tima árs,