Skinfaxi - 01.07.1953, Page 3
SKINFAXI
51
að sem bezt falli við atvinnu manna, því að þessi nám-
skeið þurfa að verða sótt af æskumönnum, sem standa
mitt í starfsins önn.
— Þá er skammt yfir í starfsíþróttirnar. Hvað viltu
segja um hug manna til þeirra?
— Ég ræddi starl'síþróttirnar út frá því sjónarmiði,
hvort þær væru til þess fallnar að hækka gengi vinn-
unnar, þ. e. auka áhuga manna fyrir algengum störl'-
um og ánægju þeirra af þeim. Vinnukeppni er því aðeins
æskileg, að hún hafi jákvæð áhrif, auki afköst og ánægju
með störfin. Reynslan af þessum þætti í íélagsstarfinu
er lítil enn þá, en mér virðisl áhugi fyrir starfsíþíólt-
unum allmikill. Margir binda við þær töluverðar vonir,
hæði sem skemmtilegan þátt í félagsstarfinu og eins
sem vekjandi afl í atvinnulífinu.
— llvað viltu svo segja mér af félagsstarfinu al-
mennt?
— Um það mætti að sjálfsögðu margt tala. Iþróttir
og skemmtanalíf eru víðast meginþættir starfsins,
minna um umræður og fræðslustarfsemi. Víða stendur
húsnæðisleysi starfinu fyrir þril'um — og sömuleiðis
kvenmannsleysi. Hvort tveggja er mjög lamandi fyrir
félagsstarfið í sveitinni. Hin nýju félagsheimili munu
að sjálfsögðu bæta úr skák í öðru efninu, og ef til vill
fást ungu stúlkurnar til að starfa í sveitinni, ef félags-
starfið verður fjölbreyttara og skemmtilegra. Að mín-
um dómi er bráðnauðsynlegt að rækja hina andlegu
lilið félagsstarl'sins jafnframt íþróttunum. Skortir víða
á í þessu, og finna forvígismenn félaganna ])að. 1 ])ess-
um efnum þarf stjórn U.M.F.Í. að gera stórt átak á
næstunni, iiliðstætt því, sem gert hefur verið í íþrótt-
unum.
— Hvað l'órstu annars víða um?
Ég ferðaðist l'yrst um Borgarfjörð, þá Suður-Þing-
eyjarsýslu, Eyjafjörð og Skagafjörð.
Og þú hefur mætt á mörgum fundum?
4*