Skinfaxi - 01.07.1953, Qupperneq 38
86
SKINFAXI
réttan hátt. Allt eru þetta atriSi, sem koma fyrir við dagleg
störf, og hafa því mikla hagnýta þýöingu. Hér fer saman leik-
ur og list, þeim til gagns og gamans, er keppir, og áhorfend-
um til yndis og lærdóms.
Akbrautin og lýsing hennar.
Akbrautin getur verið á sléttum, þurrum velli, eða mel, hvar
sem er. Ven.julegur íþróttavöllur hentar mætavel, en er engin
nauðsyn við æfingar. Hins vegar er iþróttavöllurinn tilvalinn
staður, er keppa skal í augsýn margra áhorfenda. Fellur keppni
í traktorakstri þvi vel inn í venjuleg íþróttamót og þá að-
stöðu, sem þeim er búin.
Myndin á bts. 4 sýnir akbraut, sem að stærð og legu er miðuð
við stærð venjulegs íþróttavallar, og helzt á brautin ekki að vera
skemmri en 400 metrar. Brautina má hins vegar leggja á mjög
mismunandi hátt og haga því eftir landslagi og aðstöðu, ef
keppnin fer ekki fram á íþróttavelli.
Hin einstöku mörk og æfingar nefnast þannig:
V.
1, 2 og 3.
4.
5.
6 og 7.
8.
9, 10, 11 og 12.
13.
14 og 15.
B.
M.
Viðbragðslína.
Hlið.
Viðnámslína, þar sem breytt er um ökustefnu.
Planki, 10 m langur og 25 cm breiður.
Hlið.
Viðnámslína, þar sem breytt er um ökustefnu.
Hlið.
Vegamót.
Hlið og hringakstur gegnum þau.
Brúsapallur.
Mál.
Fjöldi liliða getur verið mismunandi eftir lengd brautarinn-
ar, og hliðin staðsett á mismunandi hátt eftir aðstöðu og vild
þeirra, er staðsetja og móta keppnina, svipað og við svigkeppni
á skíðum.
Breidd liliðanna er miðuð við breidd traktors og kerru, og
eiga hliðin að vera 30 cm breiðari en mesta breidd ökutækj-
anna. Þar eð gera verður ráð fyrir nokkuð misbreiðum trakt-
oruin og traktorkerrum, eru negldir nákvæmlega jafnlangir
borðrenningar þvert yfir kerrurnar, einn yfir hverja kerru.
Eru þeir hafðir 15 cm styttri heldur en breidd hliðanna, svo
að það verður aðeins 7,5 cm akstursbil til hvorrar hliðar við
kerruna.