Skinfaxi - 01.07.1953, Blaðsíða 43
SKINFAXI
91
jPoriteinn ^2i,
marááon .
Glhli íþrótta
Við, sem vinnum að íþróttamálum þjóðarinnar, verðum oft
fyrir hnútakasti. Okkur er ætlað það, að okkur gangi ekkert
annað til en hækkun meta. Allt það ágæti, sem við teljum
íþróttaiðkunum til gildis, strjúkist af iþróttafólkinu jafnskjótt
og það smeygir sér úr íþróttabúningnum. Oft verðum við
skotspónn alls konar háðskota. Iðulega er spurt: Hvaða þýð-
ingu hefur allt þetta sprikl fyrir hið daglega líf?
Tökum í þéssu sambandi til athugunar kringlukast. Sá, sem
kasta á, stendur í hring, að þvermáli 2% m, og honum er
gert að kasta 2 kg. hlut eins langt og honum er unnt innan
45° horns sitt hvoru megin kaststefnunnar, án þess að Stíga
út fyrir liringinn. Þetta er íþróttalegt verkefni. Ef slíkt verk-
efni lægi fyrir í daglegu lifi, að færa hlut úr stað mn vissa
vegalengd, í vissa átt, innan vissra talcmarka, myndi það alls
ekki vera leyst með þeim hreyfingum, sem krafizt er af kringlu-
kastara á íþróttavelli. Nei, sá, er leysa skyldi verkefnið, myndi
óðar taka til fótanna með kringluna í hendinni og setja hana
þar niður, sem lielzt væri óskað. Eða hann velti henni bara.
Á íþróttasvæðinu verður þessu verkefni ekki svo auðveld-
lega gerð full skil. Til þess að kringlukastarinn leysi verkefnið
— íþróttina — fullkomlega, þarfnast hann sjálfur mikillar þjálf-
unar og íþróttin æfingar. Þjálfunin veitir iðkanda styrk í vöðva,
liðleika í 110811101,, þrek í ýmis liffæri og nákvæmni i tauga-
starf. Æfing íþróttarinnar færir honum nákvæmni, vandvirkni,
einbeitingu og hnitmiðun í hugsun. Þrautseigjan við að leysa
verkefnið sífellt betur í livert sinn, er hann kastar, eykur og
temur þolinmæði hans. Síðast en ekki sízt veitisl honum ánægja
af hreyfingunni og gleði yfir því að leysa ákveðna þraut
áþreifanlega betur og betur.
Furðar nokkurn á því, þegar iþróttir eru skoðaðir í þessu
ljósi, að æskufólk sækist eftir að iðka þær og leysa fjölbreyti-
leg iþróttaverkefni? Og myndu ekki þeir eiginleikar, sem liér
hafa verið taldir, koma hverjum og einum að góðu haldi í
daglegu lífi, við öll venjuleg störf?
Samt lít ég svo á, að þýðing íþrótta sé önnur og meiri. Til
þessa hef ég mest rætt um hina líkamlegu þjálfun kringlu-
lcastarans. En það er önnur lilið á málinu. íþróttir hafa einnig
sálrænar verkanir. Við vitum, að íþróttir styrkja skaphöfn