Skinfaxi - 01.09.1969, Blaðsíða 63
Handavínna hcimilanna
Ullarverksmiðjan Gefjun efnir til hugmyndasamkeppni i samráði við verzl.
íslenzkur heimilisiðnaður, um beztu tillögur að ýmsum handunnum vörum úr:
islenzkri ull í sauðalitum og öðrum litum i loðbandi, kambgarni, lopa og
Grettisgarni frá Gefjun.
Keppnin er i fjórum greinum:
1. Prjónles og hekl.
2. Röggvahnýting og vefnaður.
3. Útsaumur.
4. Mynstur í ofannefndum greinum.
1. verðlaun i hverri grein eru kr. 10.000.—, en siðan skiptast fjögur
þrjúþúsund króna verðlaun og átta eittþúsund króna verðlaun á greinarnar
eftir mati dómnefndar. Sömuleiðis verður efni og vinna i verðlaunamunum
greitt aukalega eftir mati dómnefndar. Verðlaunamunir verða eign Gefjunar.
Skilafrestur er til 31. ágúst n. k. Keppnismuni með vinnulýsingu skal senda
merkta númeri til Iðnaðardeildar SiS, Sambandshúsinu, Reykjavik, en
nafn þátttakanda með sama númeri skal fylgja í lokuðu umslagi.
Allt efni fæst i Gefjun, Austurstræti og verzlunum islenzks heimilisiðnaðar
í Hafnarstræti 3 og á Laufásvegi 2 í Reykjavik, og ennfremur liggja frammi
á sömu stöðum fjölritaðar upplýsingar um keppnina, sem eru öllum
frjálsar og verða fúslega póstlagðar fritt eftir beiðni.
Dómnefnd skipa fulltrúar frá Heimilisiðnaðarfélagi islands, Handavinnu-
kennarafélagi islands, Myndlistar og handiðaskóla íslands, Félagi islenzkra
teiknara og Gefjun, Akureyri.
Gerist hluthafar i:
HUGMYNDABANKA ÍSLENZKRA HANNYRÐA.
Gcfjun