Skinfaxi - 01.09.1969, Blaðsíða 14
Liðsauki hinna ungu
segir til sín
Rætt við Ólaf Unnsteinsson
Ólafur Unnsteinsson íþróttakennari
hefur starfað sem framkvæmdastjóri
og frjálsíþróttakennari UMSK síðan 1.
febrúar s.l. Undir handleiðslu hans æf-
ir nú eitthvert allra sterkasta frjáls-
íþróttalið landsins, bæði piltar og
stúlkur. Það hefur vakið athygli að í
þessum hópi hafa í vor og sumar kom-
ið fram á sjónarsviðið óvenjumargir
rmglingar, sem náð hafa afbragðsgóð-
um árangri og eru líklegir til að auka
mjög veg frjálsra íþrótta á Islandi.
— Á hvað leggurðu áherzlu í starfi
þínu, Ólafur?
— Þegar ég var ráðinn til starfa,
byrjaði stjóm UMSK og ég á því að
skipuleggja starfið í vetur og sumar.
Við vorum sammála um að leggja
áherzlu á að ná sem beztum tengslum
milli sambandsfélaganna og að byggja
upp unglingastarfið. Að þessu hefur
svo verið unnið, og ég vil sérstaklega
þakka stjórn UMSK fyrir hennar
mikla áhuga og vinnu og þann stuð-
ning; sem stjórnarmenn hafa veitt
mér. Framkvæmdarstjórar síðustu
tveggja ára, þeir Pálmi Gíslason og
Sigurður Skarphéðinsson, hafa unnið
ágætt starf, sem ég hef getað byggt á.
— Hvernig hafa svo þessi áform
ykkar tekizt?
— Við höfðum í vetur samband við
UMSK-stúlkurnar, sem jöfnuðu ísl.met 1
4x100 m boðhlaupi í sumar. Frá vinstri:
Kristín, Björk, Alda og Björg.
14
SKINFAXI