Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.09.1969, Blaðsíða 29

Skinfaxi - 01.09.1969, Blaðsíða 29
. . . líka kven- fólksins, ef það vill Iengja lífið . . . erfitt um vik. Fólk velferðarríkisins virðist því miður meta allt til fjár nú til dags, og það græðir ekkert áþreif- anlegt með því að leggja þessa hreyf- ingu á sig, nema ef til vill nokkurra ára lengra líf, ár sem eru þó langt inni í ókominni tíð, að flestra áliti. Þeir öðlast líka vellíðan stundarinnar eftir erfiði hreyfingarinnar og þá gleðikennd sem hún veitir, og allir þeir, sem aldrei hafa upplifað, geta ekki ímyndað sér að til sé, og sækjast þar af leiðandi ekki eftir. Hvað getum við svo gert til úrbóta? Jú, við sem erum innan íþróttahreyf- ingarinnar og þekkjum þessa vellíðan af eigin raun, eigum að hefja áróður fyrir því, hvert í okkar héraði að allir, ungir jafnt sem gamlir, hefji nú léttar íþróttaiðkanir. Við eigum að samein- ast um að skapa fólkinu möguleika til að ,,motionera“. Skapa því tækifæri til að safnast á íþróttavöll, við sund- laug, íþróttahús eða jafnvel búnings- herbergi gufubaðstofu til hollustusam- legrar hreyfingar og endurnærandi baðs á eftir. Þarna gæti fólkið safnast í minni eða stærri hópa, eiginlega hve- nær sem væri eftir því hvernig tíma þau hefðu til þess. Sumir hefja starf síðar en aðrir og gætu því byrjað dag- inn með því að ,,motionera“. Frúrnar gætu notað miðjan daginn, þegar þær hefðu minnst að gera, en aðrir gætu komið eftir vinnu o. s. frv. Einfaldast væri að útbúa æfinga- brautir frá þessum stöðum svo sem 3—5 km langar, um götur, vegi, stíga eða engi, þar sem fólkið gæti óáreitt gengið, hlaupið, hjólað eða jafnvel far- ið á skiðum, ef um snjó væri að ræða, allt eftir því hvað einstaklingarnir geta eða óska eftir að leggja á sig. I byrjun þyrfti einhver að vera þar við, þegar fólkið legði af stað til þess að gefa því ráð og leiðbeina því eftir þörfum. En síðar, þegar þetta yrði jafn almennt og hjá frændum vorum Norð- mönnum og Svíum, þá myndu þátt- takendurnir kenna hver öðrum af eig- in reynslu. Sérhvert íþróttafélag ætti að hafa íþróttir fyrir almenning, sem óskar eft- ir að ,,motionera“, á stefnuskrá sinni. Það ætti eftir megni að kynna gagn- semi íþrótta fyrir fólki búsettu á fél- agssvæðinu og hvetja það til þátttöku í æfingunum og umfram allt að hvetja það til að ,,motionera“ reglulega. Þessi starfsemi yrði góð kynning á íþróttunum, starfi félagsins og skref í áttina að takmarki okkar, sem er og verður: íþróttir fyrir alla. SKINFAXI 29
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.