Skinfaxi - 01.09.1969, Blaðsíða 3
1909 skinfaxi 1969
Tímarit Ungmennafélags íslands — LX. árgangur — 4.—5. hefti ársins 1969
Ritstjóri Eysteinn Þorvaldsson — Út koma 6 hefti á ári hverju, hvert 32 síður
Styrkjum tengslin
Stjórn Ungmennafélags íslands sendir
lesendum Skinfaxa um allt land sínar
beztu kveðjur. Viðfangsefni hinnar nýju
stjórnar eru mörg, en öflugt starf og
samstaða samtakanna mun hjálpa til að
leiða þau farsœllega til lykta. Brýnasta
verkefni stjórnarinnar verður að rétta
við fjárhag samtakanna.
Þá mun það verða eitt af meginverk-
efnum stjórnarinnar að kanna stöðu og
viðhorf ungmennafélaganna í landinu
og efla tengslin við þau. í þessu skyni
verður lögð áherzla á erindrekstur, eink-
um stjórnarmanna sjálfra, þvi persónu-
leg samskipti forystumanna og sem
flestra ungmennafélaga eru nauðsyn-
leg. Ársskýrslur héraðssambanda og
einstakra félaga eru flestar vel og sam-
vizkusamlega gerðar, en nokkuð skortir
á að þœr berist frá öllum aðilum. Hvers
konar skráðar heimildir um starfsemi
félaganna eru mikilsverð gögn í þá
sögu, sem við eigum sameiginlega að
skrifa, sögu ungmennafélaganna á ís-
landi.
Verum þess minnug, góðir ungmenna-
félagar, að ungmennafélögin eru til orð-
in í þessu landi fyrir brýna þörf á frjáls-
um félagsskap þar sem flestir gátu
fundið hugðarefnum sínum farveg. Nú,
60 árum síðar, er þörfin enn fyrir hendi
og hlutverk samtakanna hefur stóraukizt,
svo að engin félagssamtök spanna yfir
jafnvíðtœkan starfsvettvang. Við skulum
styrkja stöðu samtaka okkar með nánari
samskiptum og betri tengslum innan
hreyfingarinnar, um leið og við höfum
góða samvinnu við hvern þann aðila,
sem leggur baráttumálum hreyfingar-
innar lið.
Stjórn UMFÍ minnir alla ungmenna-
félaga á málgagn samtakanna, Skin-
faxa, sem ákjósanlegan vettvang til um-
rœðna og gagnkvœmrar frœðslu.
Hafsteinn Þorvaldsson
SKINFAXI
3