Skinfaxi - 01.09.1969, Blaðsíða 10
unnið hefur mikið og óeigingjarnt
starf. Við höfum í ár mjög dugandi
þjálfara, Ólaf Unnsteinsson, sem náð
hefur ágætum árangri í starfi sínu.
I sundinu er mikilla framfara að vænta
eftir tilkomu sundlaugarinnar í Kópa-
vogi og sundþjálfun er einnig að
Varmá í Mosfellssveit. Knattspyrna er
æfð í flestum félögum í UMSK með
góðum árangri. Breiðablik (UBK) er
þar fremst í flokki og um það bil að
vinna sig upp í fyrstu deild. Glíma er
einnig æfð hjá UBK og Stjörnunni.
Handbolti í 4 félögum og körfuknatt-
leikur hjá UBK.
— Er fjárhagurinn ekki erfiður eins
og víðar?
— Jú það er alltaf erfitt að ráða
fram úr því. Sambandið fær nokkurn
styrk frá öllum sveitarfélögunum og
einnig úr sýslusjóðum Gullbringu-
sýslu og Kjósasýslu. Þessir aðilar eru
aðalstyrkjendur okkar f járhagslega.
— Ertu ánægður með Héraðshátíð
ykkar í Saltvík í sumar?
— Já, ég tel hana góða byrjun.
Hlutverk hennar er að efla félagslífið,
tengja saman félögin þannig að unga
fólkið kynnist í keppni og leik. Við
vorum óheppnir með veður, en samt
tókst þetta vel. Skemmtunin um
kvöldið fór prýðilega fram. Þar sá
ekki vín á nokkrum manni, og þannig
skemmtanir viljum við halda.
— Eru fleiri þættir í starfi UMSK,
sem þú vildir minnast á ?
— Starfið er fyrst og fremst íþrótta-
starfið og svo viðleitni okkar til að
halda uppi góðu skemmtanalífi ýmis-
konar. Þá höfum við haldið bridgemót
með góðum árangri.
— Það hefur borið talsvert mikið a
UMSK á íþróttasviðinu í sumar. Verð-
ur framhald á því?
— Já, það hafa orðið góðar fram-
farir. En vandi fylgir vegsemd hverri,
og velgengni okkar í sumar kallar a
enn meira starf í framtíðinni, ef ekki
á að fara til ónýtis það sem byggt hefur
verið upp.
Þennan myndarlega hóp
skipa sigurvegarar UMSK
í frjólsíþróttum á Lands-
mótinu í fyrra. Frá vinstri:
Trausti Sveinbjörnsson,
Kristín Jónsdóttir, Þórð-
ur Guðmundsson, Arndís
Björnsdóttir, Karl Ste-
fánsson og Ina Þorsteins-
dóttir (Ljósm. Sig. Geir-
dal).
10
SKINFAXI