Skinfaxi - 01.09.1969, Blaðsíða 27
Guðmundur Þórarinsson
Gagnsemi íþrótta-
og kynningarstarisemi
Á síðari árum hafa komið fram í heim-
inum ýmis ný hugtök. Eitt þeirra er
„PR“, sem farið hefur sem eldur í sinu
um heim allan og valdið miklum
straumhvörfum á mörgum sviðum og
breyttum hugsunarhætti og viðhorfi
manna.
„PR“, skammstöfun á ensku orðun-
um Public Relations, er notað um
hverskonar kynningarstarfsemi á hlut-
um eða viðhorfum, ýmist innan tak-
markaðs hóps manna eða út á við til
alls almennings.
Starfsemi þessi byggist á auglýsing-
um og útskýringu jafnt á rituðu máli
sem töluðu, bókum, bæklingum og
blaðagreinum, útvarpserindum og
sjónvarps, kvikmyndum og auglýs-
ingamyndum í sjónvarpi sem og kvik-
myndahúsum og getur, ef öfluglega er
starfað, nálgast að geta kallast áróður.
Iþróttastarfseminni er full þörf mikill-
ar og vinsamlegrar kynningar, bæði út
á við sem innan eigin áhrifahóps. Því
miður er því of oft svo farið, að mönn-
um er ekki gefið að geta kynnt starf-
semi sína eða eru hræddir um, að ef
þeir gerðu það, þá yrðu þeir ásakaðir
fyrir að vera að trana sér fram.
Áhrifamesta kynning íþrótta er auð-
vitað það, sem blöðin, hljóðvarp og
sjónvarp flytja. En þar sem aðalhlut-
verk þeirra er að flytja fréttir, þá verð-
SKINFAXI
27