Skinfaxi - 01.09.1969, Blaðsíða 44
r
Frá Æskulýðssambandi Islands
6. þing Æskulýðssambands íslands var haldið
31. maí og 1. júní s. 1. og sóttu það fulltrúar
frá 10 af 12 aðildarsamböndum ÆSÍ. Aðalmál
þingsins var tengsl sambandsins við aðildar-
samböndin og aukið samstarf þar á milli. Auk
þess fjallaði þingið um fjölmörg málefni
er snerta æskufólk, hagsmuni þess og áhuga-
mál. Verður hér aðeins getið helztu ályktana
þingsins,
Þingið tók til umræðu atvinnuleysi skóla-
nema og segir í ályktun þingsins m.a.: ,,6.
þing ÆSÍ hvetur bæjar- og sveitarfélög og rík-
isvald til þess að gera öflugt átak til útrým-
ingar fyrirsjáanlegu atvinnuleysi skólafólks í
sumar. Efla þarf og hraða framkvæmdum á
vegum framangreindra aðila . .
Á 5. þingi ÆSÍ fyrir tveimur árum voru
gerðar ýmsar ályktanir um nánari tengsl
þjóðar og sögu og um breytt þjóðhátíðarhald.
Á þinginu 31. maí og 1. júní s.l. komu fram
tillögur í sama anda, m.a. um endurreisn
sögustaðar í Viðey. Þar segir: ,,6. þing ÆSÍ
skorar á ríki og Reykjavíkurborg að hefja
sameiginlegar framkvæmdir í Viðey, sem
miða að því að endurreisa staðinn úr þeirri
niðurníðslu, sem þessi fornfrægi sögustaður
hefur verið í. Gert verði stórt átak í að varð-
veita sögulegar minjar í eyjunni og gera stað-
inn þannig úr garði að hann verði heppilegt
útivistarsvæði, Bendir þingið á að fram-
kvæmdir þar hið fyrsta yrðu nokkur lausn á
atvinnuleysi skólafólks".
Um sögusýningu ályktaði þingið: ,,að beina
þeirri áskorun til Menntamálaráðuneytisins,
að í tilefni 25 ára afmælis lýðveldisins verði
efnt til sögusýningar á hausti komanda. Á
sýningunni verði brugðið upp svipmyndum úr
sjálfstæðis- og menningarbaráttu íslenzku
þjóðarinnar. Sýningin verði skipulögð í sam-
ráði við Þjóðminjasafn íslands og byggð á
reynslunni af sögusýningunni 1944.“
Þingið samþykkti að standa áfram að herferð-
inni Hreint land — Fagurt land og að taka
þátt í nýrri sókn í landgræðslumálum, í
samvinnu við UMFÍ og fleiri aðila.
Þingið samþykkti að skora á fræðsluyfir-
völd að taka hið fyrsta upp kynferðismála-
fræðslu í skólum og vinnur nefnd á vegum
ÆSI að nákvæmri athugun á hugsanlegri
kynferðismálafræðslu í skólum landsins. Einn-
ig vinnur nefnd að könnun á deyfilyfjanotkun
og skoraði þingið á stjórnvöld að taka hönd-
um saman við félagssamtök að halda þessum
vágesti utan landssteina.
Á vegum ÆSÍ er unnið að könnun á
skemmtanahaldi og skemmtanalífi ungs fólks
og að könnun á menntunaraðstöðu í strjál-
býli. Var samþykkt að hraða störfum þeirra
nefnda og gera tillögur er þessar kannanir
lægju fyrir.
Á þinginu var samþykkt tillaga um
skemmtanahald um hvítasunnuhelgi. Hún var
svohljóðandi:
,,6. þing ÆSÍ vill hvetja félagasamtök,
sem á undanförnum árum hafa beitt sér
fyrir skipulögðu skemmtanahaldi um Verzl-
unarmannahelgina og aðra þá aðila er áhuga
kunna að hafa á þessu máli, að koma á
svipuðu skemmtanahaldi um hvítasunnu-
helgina, sem er að jafnaði önnur fjölmennasta
útivistarhelgi sumarsins. Tekizt hefur að
gjörbreyta samkomuhaldi um allt land síðan
farið var að skipuleggja slíkar samkomur.
Þingið leggur áherzlu á að með slíku skemmt-
44
SKINFAXI