Skinfaxi - 01.10.1988, Side 6
Molar
Á SÍðasta stjómarfundi UMFÍ sem haldinn var á Hótel Djúpuvík á
Ströndum 2. og 3. september síðastliðinn voru m.a. kynnt drög að nýrri
Landsmótsreglugerð sem þar til kjörin nefnd hafði unnið. Það merki-
legasta íþeim tillögum erbreyting á stigaútreikningi. í drögunum er lagt
til að allir sambandsaðilar sem taka þátt í grein hljóti stig. Lagt er til að
tvær nýjar keppnisgreinar verði teknar inn, þ.e. knattspyma kvenna og
bridds. Þá er einnig lögð fram sú rótttæka tillaga að mótið sé sett á
fimmtudegi og urðu nokkrar umræður um þá tillögu. Einnig var lagt til
að lágmörk verði sett í sundi og frjálsum íþróttum. Þessi drög verða rædd
á Sambandsráðsfundi UMFÍ sem haldinn verður í Borgarfirði 12.
september næstkomandi. Þar verður gengið frá endanlegri
Landsmótsreglugerð. Og verður sagt rækilega frá henni í næsta blaði...
UlfljÓtur, héraðssamband
þeirra A-Skaftfellinga fór í sumar
upp úr 3. deild Bikarkeppni FRÍ
einsogkunnugter. ÁHomafirðier
nú verið að leggja síðustu hönd á
íþróttavöll sem hafist var handa
við síðasta sumar. Eftir er Ijúka við
hlaupabrautimar sem verða fjórar
á 400 metra hringnum og sex brau-
tir á 100 metra sprettinum. Þeir
sem hafa staðið í að koma upp
vellinum eru nú að velta fyrir sér
ákveðinni nýjung við frágang á
hlaupabrautinni. Yfirleitt eru sett-
ar tréfjalir milli brautarinnar og
grasvallarins. Ulfljótsmenn eru
hins vegar að velta þeim
möguleika fyrir sér að setja plast á
milli í stað trésins. Þeir sem þekkja
til þessara mála segja þetta
afbragðs hugmynd...
Stjóm Dagsbrúnar, sem er
félag þeirra A-Landeyinga á
Suður-landi, er ófrísk. Nokkuð
einkenni-leg fullyrðing kannski en
sönn samt sem áður. Stjóm
Dagsbrúnar er saman sett af þre-
mur konum. Þær eru allar
ófrískar...
Miklar umræður urðu um allan
heim um lyfjamál íþróttamanna í
kjölfar lyfjahneykslisins á
Olympíuleikunum í Seoul. Þetta á
einnig við um Norðurlöndin. Nú
hefur það frést að norsk
frjálsíþróttasambönd hyggist
koma á sameiginlegum lyfja-
prófunum á skipulegan hátt, m.a.
fyrir stórmót þau sem haldin verða
á Norðurlöndunum. Þetta hefur
eki verið útfært nákvæmlega
verður sjálfsagt gert á næstunni.
Þing norrænna frjáls-
íþróttasambanda tekur afstöðu til
þessa máls...
UMSK menn eru nokkuð
ánægðir með uppskeru sinna
aðildarfélaga í sumar í knatt-
spyrnunni. Stjaman komst upp í 2.
deild karla í meistaraflokknum,
varð íslandsmeistari 3. deildar. 5.
flokkur Stjömunnar varð íslands-
meistari í sínum flokki. Breiðalik
varð Islands - og bikarmeistari í 3.
flokki karla. Þar er geysisterkt lið
á ferð. Meistaraflokkur kvenna í
Breiðabliki varð 2. deildarmeistari
í knattspymunni og er á uppleið
eftir nokkurn öldudal...
Rétt þykir að minna
hér á greiðslu gíró-
seðla fyrir áskrift að
Skinfaxa. Við minn-
um á að áskrifendur
geta nú greitt með
Visa- eða Euroeard
korti. 1250 krónur
fyrir sex blöð er
auðvitað ekkert verð!
6
Skinfaxi