Skinfaxi - 01.10.1988, Blaðsíða 20
Blak
s
32 Islandsmeistaratitlar
Ein öflugasta blakdeild á íslandi í 10 ár.
íslandsmeistari í fjórum flokkum 1988.
íslandsmeistarar HK 1988 í 3.flokki pilta
Aftari röð f.v. Kjartan Þórólfsson, Stefán Sigurðsson, Jón Ó Bergþórsson, Stefán Þ Sigurðsson og Davíð
Guðmundsson. Fremri röð: Brynjólfur Eyjólfsson, Jón Geir Sigurbjörnsson, Jón Gunnar Gylfason, Ymir B.
Arthursson og Einar Þór Asgeirsson (þjálfari). A myndina vantar Sigurbjörn Bernharðsson.
Blakdeild HK var stofnuð 1974.
Aðaláhersla var lögð á barna- og ung-
lingastarf, og á fyrstu fimm árunum tókst
að byggja upp sterkt og öflugt blakfélag
bæði fyrir böm og fullorðna.
Hér í þessari stuttu grein verður ein-
ungis minnst á afrek Blakdeildar HK í
íslandsmótum.íslandsmeistaratitlar eru
orðnir 32 að tölu, fleiri en hjá mokkurri
annarri blakdeild á landinu.
Hér gefur að líta töflu yfir fjölda
verðlaunasæta Blakdeildar HK á
Islandsmótum.Yngri flokkarnir eru
atkvæðamestir í þessari afrekaskrá, en
þeir fullorðnu eru líka með og því meir
sem á líður.
15 flokkar í keppni og 10
verðlaunasæti 1988.
Meistaraflokkamir hjá Blakdeild HK
vöktu verðskuldaða athygli í vetur. Eftir
aukaúrslitakeppni milli þriggja bestu
blakliða landsins í karlaflokki, IS, HK og
Þróttar, fengust loks endanleg úrslit í
úrvalsdeild. IS varð Islandsmeistari, HK
í öðru sæti og Þróttur í þriðja sæti.
Hið unga og efnilega lið HK í meista-
raflokki kvenna varð í 5. sæti í deil-
darkeppninni. Fjögur efstu liðin léku svo
í úrvalsdeild, en hin léku í 1. deild. HK -
stúlkumar unnu ömgglega 1. deildina og
urðu 1. deildar meistarar í ár. I eldri
flokkunum hefur Blakdeild HK verið í
fremstu röð síðasta áratuginn. I vetur
hlaut HK íslandsmeistaratitilinn í öðlin-
gaflokki karla ( 40 ára og eldri ) og HK
varð í 2. sæti í öðlingaflokki kvenna annað
árið í röð. I öðlingaflokki karla (30 ára og
eldri ) hefur HK leikið í 1. deild frá
upphafi. I vetur hlaut HK þriðja sætið
sjöunda árið í röð, en þar áður varð HK
20
Skinfaxi