Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.10.1988, Side 36

Skinfaxi - 01.10.1988, Side 36
Merkilegar tölur Um 1.900 manns iðka skák hjá ungmennafélögum - Þjóðdansaiðkendur eru um 200 - í stjómum og nefndum eru um 4.200 manns, o.sfrv. Þegar litið er yfir kennslu- og ársskýrslur héraðssambandanna og hinna einstöku félaga kemur margt fróðlegt og athyglisvert í ljós. Hver er t.d. þróun ungmennafélaganna og viðgangur á heimaslóðum? Hvað gera þau til að koma markmiðum sínum og stefnu á framfæri og hvemig eru þau í stakk búin til að sinna þjóðfélagslegri skyldu sinni? Þessar spumingar og margar aðrar koma fram á varir okkar þegar við hugleiðum tilgang þess starfs sem við erum að gera í okkar frístundum. Svör við þeim og mörgum fleiri fáum við í árs- og kennsluskýrslum og sýna þær, svo ekki verður um villst, mikilvægi þess að félögin, samböndin og stjómendur þeirra komi þessu starfi á framfæri og kynni það rækilega, svo mikil og merkileg eru þau. Umtalsverð fjölgun í UMFÍ. í Ungmennafélagi Islands eru nú 232 félög sem mynda 18 héraðssambönd, 10 félög eru með beina aðild að UMFI. Innan þessara 232 ungmennafélaga em síðan 57 deildir með sjálfstæðan fjárhag (það má því segja að 289 félög standa að UMFÍ). í skýrslum þessara félaga kemur fram óvenju mikil fjölgun félagsmanna á s.l. ári eða úr 29.572, árið 1986 í 34.810 árið 1987. Þetta er mjög ánægjuleg þróun og hefur aldrei orðið slík aukning á einu ári síðan UMFÍ var stofnað árið 1908. Þetta er hvorki meira né minna en aukning um Um það bil 860 ungmennafélagar stunda leiklist að jafnaði. Myndin er tekin á skemmtikvöldi á þingi HSK og það er "Sálin hans Jóns míns" sem ertil umræðu. 5.240 félaga. Að virkja fjöldann. Iðkendafjöldi í íþróttum er kominn yfir 50.000 er það sannarlega ánægjulegt Þjálfarar og leiðbeinendur voru ungmennafélögunum á árinu 1987. þegar tillit er tekið til þess að kjörorðið nú er “ Virkjum fjöldann “. Þegar skoðað er það mikla starf sem kemur fram í skýrslunum og unnið er að innan félaganna, þá sleppum við alveg íþróttastarfinu, kemur margt skemmtilegt í ljós, fróðlegt og um fram allt táknrænt fyrir störf ungmennafélaganna. I stjómum og nefndum þessara félaga em rúmlega 1.400 manns hjá hvorki meira né minna en 4.200 manns og eru þær ómældar stundimar sem þetta fólk hefur starfað fyrir sín félög. Fundarhöldin hjá þessu stjómarfólki eru 5.414 fundir. 36 Skinfaxi

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.