Skinfaxi - 01.12.1991, Side 5
F R Á RITSTJÓRA
Innihaldslausar glansmyndir
Mörg samtök hafa tekið upp á því að gefa út rit sér til fram-
dráttar og má fullyrða að útgáfa margra hefur orðið til þess að
auka veg og vanda þeirra. Ungmennafélagar eru nú orðnir um
45 þúsund talsins og Ijóst má vera að útgáfa hreyfingarinnar á
Skinfaxa í rúmlega áttatíu ár hefur verið málstaðnum til mikils
framdráttar. Á þessum tíma sem liðinn er hafa oft ýmsir erfið-
leikar steðjað að ungmennafélögunum og Skinfaxa, en þeir hafa
jafnan verið yfirstignir.
Árið 1947 skrifaði Daníel Ágústínusson grein í Skinfaxa sem
bar yfirskriftina: Skylda ungmennafélaga við Skinfaxa. Þar
segir hann frá því að félagshreyfing með rúmlega 10 þúsund fé-
lagsmenn eigi að hafa góða aðstöðu til þess að útbreiða tímarit
sitt og gera það fjárhagslega sterkt. Daníel skrifar: „Þessu hef-
ur þó ekki verið þannig varið með Skinfaxa. Hann hefur aldrei
verið gróðafyrirtæki, eins og ýmis tímarit, heldur þvert á móti
oft verið rekinn með talsverðum halla.” Þessi orð Daníels gætu
allt eins átt við í dag. Útgáfa Skinfaxa er ekki ætluð til að bera
gróða, en tilgangur blaðsins m.a. að upplýsa um heilbrigt og
gott líf, þar sem aðaláherslan er lögð á íþróttaiðkun og aukinn
félagsþroska. Hins vegar stoðar lítt að gefa út blað, bara til
þess að gefa út blað. Innihald blaðsins, útlit og úrvinnsla á efni
eru þeir stólpar sem byggja verður á.
Hin síðari ár hefur Skinfaxi tekið ýmsum stakkaskiptum í takt
við breyttar aðstæður í þjóðfélaginu og er það vel. Hins vegar
verður að segjast eins og er að minna hefur verið hugað að fjár-
hagslegri hlið blaðsins, s.s. félagasöfnun og innheimtu áskrift-
ar- og auglýsingagjalda. í gegnum árin hafa margar leiðir verið
farnar og má þar nefna að einstök ungmennafélög hafa verið
fengin til þess að safna áskrifendum og innheimta áskriftar-
gjöld, en þær hafa ekki gefist sem skyldi. Ef menn vilja gefa út
blað þá er ekki hægt að gera það
með hangandi hendi.
Blað eins og Skinfaxi reynir að
taka jákvætt á málum virka til upp-
byggingar en ekki niðurrifs. Það
hefur oft vakið furðu mína að fólk
skuli kaupa blöð eða glanstímarit,
þar sem ýmsir þekktir þjóðfélags-
þegnar sýna sinn innri mann, eða
láta birta af sér myndir með bring-
una bera. Á forsíðum eru gjarnan myndir af konum og þær
kynntar sem dularfullar með mörg andlit. Oft er hástemmd um-
fjöllun unr einskisverða hluti eins og t.d. hönnun ilmvatnsglasa
og hugmyndir að baki henni, en minna rætt um ilmvötnin sjálf.
Ég segi fyrir mig að ég hef engan áhuga á því að lesa sífellt hin-
ar margslungnu slúðursögur um hinn og þennan. Ég hef áhuga
á því að lesa um það sem getur veitt mér meiri þekkingu á því
hvernig mér og mínum getur liðið vel, með því að stunda íþrótt-
ir, borða hollt fæði og stuðla að verndun íslenskrar náttúru og
gæða landsins.
Skinfaxi er jákvætt blað og umfjöllun þess er nánari útfærsla á
stefnumarkmiðum hreyfingarinnar um ræktun lýðs og lands.
Þessi stefnumarkmið eru enn í fullu gildi því svarið við margs-
konar vandamálum sem upp kunna að koma í daglegu lífi fólks
er íþrótta- og félagsstarf allra aldurshópa. Stuðlum að eflingu í-
þróttaiðkunar og félagsþroska, jafnt ungra sem aldinna og bæt-
um þar með mannlífið í kringum okkur.
Bestu kveðjur, með von um gleðileg jól og heillaríkt kontandi
ténncc
Raddir lesenda
Raddir lesenda er fastur þáttur í
Skinfaxa þar sem fram koma
skoðanir lesenda á efni blaðsins.
Hringt er í nokkra lesendur og
þeir beðnir að gefa álit sitt á
efni og útliti blaðsins. Hug-
myndin er sú að gera Skinfaxa
þannig úr garði að sem flestir
geti vel við unað. Lesendur,
hringið eða skrifið og látið álit
ykkar í Ijós, síminn er 91-12546.
Guðrún A. Gunnarsdóttir
Stykkishólmi
„Mér fannst síðasta blað gott. Það var
heilmikið í því, Skinfaxi á erindi til allra
og það mætti kynna starfsemi UMFÍ meira
í blaðinu. Almenningur áttar sig ekki á
því hve viðamikið starf fer fram innan
hreyfingarinnar.”
Svanhildur Pálsdóttir
Stóru-Okrum
Skagafirði
„Mér finnst Skinfaxi ágætur. í síðasta
blaði var mikið af góðum viðtölum við í-
þróttafólk. Slíkt heldur manni við efnið.
Blaðið er innihaldsríkt, en e.t.v. mætti
vera meiri fræðsla í því handa starfandi
forystumönnum. Reyndar vegur Frétta-
bréf UMFl þar upp á móti. Þó mætti
kynna norrænt samstarf, t.d. norrænu ung-
mennasamskiptin.”
Jóhann Kristján Briem Arnason
Selfossi
„Blaðið er ágætt og höfðar örugglega til
unga fólksins, mikið um íþróttir og þess-
háttar fyrir æskuna. En það sem ég sakn-
aði mest í síðasta blaði var vísnaþátturinn.
Hann les ég alltaf og það er nauðsynlegt
að hafa hann með.”
Vegleg bókagjöf
Hjónin Guðjón Ingimundarson og Ingi-
björg Kristjánsdóttir frá Sauðárkróki
færðu Ungnrennafélagi íslands veglega
bókagjöf fyrir stuttu. Um er að ræða
námsbækur og gögn frá íþróttaskóla
Björns Jakobssonar á Laugarvatni vet-
urinn 1936-1937, en þar stundaði Guð-
jón nám. Guðjón hefur setið í stjórn
UMFl og er þekktur fyrir félagsstörf sín
innan hreyfingarinnar. Bækurnar eru
innbundnar af Guðjóni sjálfum og er
þessi gjöf kærkomin viðbót við það safn
gamalla heimilda sem UMFÍ á.
Skinfaxi
5