Skinfaxi - 01.12.1991, Blaðsíða 20
Þegar allt gengur
út á fótbolta
Stefán Már Guðmundsson fram-
kvæmdastjóri hjá Fjölni er þjálf-
ari yngstu strákanna úr Fjölni í
knattspyrnu. Stefán er úr smáí-
búðahverfinu í Reykjavík og
æfði knattspyrnu með Víkingi.
íþróttaferillinn byrjaði í sigur-
sælum hópi 5. flokkspeyja ásamt
Heimi Karlssyni, Lárusi Guð-
mundssyni, Arnóri Guðjónssen
og fleiri góðum knattspyrnu-
mönnum. Hann var líka í hand-
bolta og skátastarfi og hefur
lengi starfað að félagsmálum,
bæði hjá skátunum og Víkingi.
Ungmennafélögunum kynntist
hann fyrst þegar hann var kenn-
ari á Þórshöfn í Norður-Þingeyj-
arsýslu og var framkvæmdastjóri
hjá Ungmennasambandi Norður-
Þingeyinga eitt sumar. „Það var
þá sem ég kynntist þessari víð-
feðmu starfsemi ungmennafé-
laganna og áttaði mig á því hvað
þetta var í raun og veru mikið
starf," segir Stefán í stuttu
spjalli við Skinfaxa.
Stefán Már.
Þetta eru ungir strákar sem þú ert með,
hvað eru þeir gamlir?
„Þennan flokk má eiginlega kalla 8.
flokk og strákarnir í honum eru fæddir
'85-'88. 8. flokkur var stofnaður i' fram-
haldi af sérstökum fundi nteð foreldrum,
þar sem ákveðið var að gefa þessum
strákum kost á því að leika sér með fót-
bolta. Áður hafði alltaf slæðst inn einn
og einn ungur strákur, en mér vitandi
eru ekki mörg félög með svo unga
krakka í knattspyrnu eða jafn mikinn
fjölda og hér er,” segir Stefán. Með til-
komu 8. flokks höfum við ákveðið að
vísa engum frá, hvorki stelpum né strák-
um, sem vilja fá að vera með og við
höfum fengið foreldra til þess að koma á
æfingar og aðstoða, þó ekki væri nema
til þess að reima skóna, því það getur oft
verið mikið mál. Það getur tekið mik-
inn tíma að sinna hverju og einu, til að
20
Skinfaxi