Skinfaxi - 01.12.1991, Side 12
T E N N I S
Teimisfjölskyldan í Grafarvogifrá vinstri, Hjörtur Ingibjörg Þórir, Hannes, Þórunn og Hrafnhildur.
Tennis á uppleið
Tennisdeild Fjölnis var stofnuð 30. apríl
1990. Þá voru undangengin námskeið í
minnitennis og tennis þar sem 50-60
börn komu og kynntust tennis í fyrsta
skipti.
Ahugi á tennis í Grafarvoginum er gíf-
urlega mikill og yfir vetrartímann
stunda milli 70 og 80 manns æfingar.
Stærsti hópurinn er 12-14 ára krakkar,
yngri börnin eru í minnitennis, og auk
þess æfa karlar og konur á öllum aldri.
Landsliðshópur unglinga 11-17 ára er
skipaður 14 krökkum og þrfr þeirra eru
úr Fjölni. Auk þess á Fjölnir nokkra
efnilega unglinga sem örugglega eiga
eftir að láta að sér kveða í framtíðinni.
„Starfið gengur vel, stöðugt fjölgar í
deildinni og við reynum að fá foreldra
áhugasamra barna til þess að taka þátt í
starfinu,” segir Hannes Hjartarson, for-
maður deildarinnar og hefur átt mestan
þátt í framgangi hennar. Hannes spilar
sjálfur tennis og reyndar allir í fjöl-
skyldunni. Ingibjörg konan hans spilar
og börnin Hrafnhildur og Hjörtur hafa
mikið látið að sér kveða. Þau yngstu
Þórir 5 ára og Þórunn 6 ára, spila minni-
tennis.
„Það er mikilvægt að geta boðið sem
flestum aldurshópum upp á kennslu,
bæði börnum og foreldrum þeirra.
Tennisíþróttin er fjölskyldufþrótt og
fólk á öllum aldri, frá 5-75, ára getur
spilað. Það er gaman fyrir alla fjöl-
skylduna að geta spilað saman og haft
gaman af. En það tekur langan tíma að
ná góðum tökum á fþróttinni og því þarf
þolinmæði til. Til þess að ná langt er
æskilegt að byrja á barns- eða unglings-
aldri. Það eru frekar börn sem gefast
upp og hætta en fullorðnir halda undan-
tekningarlítið áfram.”
Bágborin aöstaöa
„Það sem háir tennisíþróttinni á Islandi
er bágborin aðstaða. Það er enginn lög-
legur innivöllur fyrir tennis og hefur það
staðið íþróttinni verulega fyrir þrifurn. I
íþróttahúsi Fjölnis eru tveir æfingavellir
og í húsi TBR er einn völlur. Vallar-
leiga hefur verið frá 1700-2500 krónur á
klukkutímann, sem dreifist þá á 2-4 spil-
ara. Meðlimir tennisdeilda greiða ár-
gjöld til deildanna og það getur leitt til
lækkunar á vallarleigu. Eðlileg vallar-
leiga ætti því að vera 800-1200 á
klukkutímann,” segir Hannes.
Framtíð tennisdeildar Fjölnis er björt. Á
íþróttasvæði Fjölnis er gert ráð fyrir
fjórum tennisvöllum, tveim með gervi-
grasi og tveim í yfirbyggðu stálgrindar-
húsi og Ijóst er að eftir að aðstaðan
verður tekin í notkun mun tennisáhuga-
mönnum í Grafarvoginum fjölga veru-
lega.
Til upplýsingar má geta þess að tennis-
spaðar kosta frá 3000-20 þúsund krónur,
allt eftir gæðum og box með þremur
boltum kostar 500-600 krónur. Að
leigja útivelli er breytilegt eftir gæðum
vallanna er síðastliðið sumar var leigan
300-1000 krónur á klukkutímann.
12
Skinfaxi