Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.12.1991, Side 18

Skinfaxi - 01.12.1991, Side 18
KVENNAÍÞRÓTTIR Kvennaleikfimi Konur gleyma oft að hugsa um sjálfa sig Hjá Fjölni í Grafarvogi hefur frá því í október verið starfrækt leikfimi fyrir konur. Þar mæta 35 íþróttakonur, á aldrinum 25- 60 ára, mjóar, þrýstnar, smá- vaxnar eða hávaxnar og allar til þess að þjálfa vöðvana og láta sér líða vel. Margrét Sölvadóttir er þjálfari í kvenna- leikfiminni, en hún hefur kennt konum leikfimi meira eða minna í tuttugu ár. Um tíu ára skeið rak hún heilsuræktina Hebu í Kópavogi og um það leyti sem hún byrjaði eða fyrir tuttugu árum, tíðk- aðist það ekki að konur færu í leikfimi. „Þetta var skemmtilegur tími,” segir Margrét. „Konurnar komu víða að, t.d. frá Selfossi og Suðurnesjunum, þær gátu stundað leikfimi, fengið nudd og farið í gufubað og ljós. Þetta var eigin- iega í fyrsta skipti sem konur komust út af heimilunum. Þegar best lét komu allt upp í 200 konur á dag. Margrét Sölvadóttir þjálfari. „Leikfimin, sem ég er með í dag er þannig uppbyggð að ég reyni að byggja upp þol með erobik-æfingum og þær æfingar eyk ég jafnt og þétt eftir því sem tíminn líður,” segir Margrét. „Fyrst tóku æfingar 10 mínútur, en nú eru það 20 mínútur sem fara í þessar þolæfingar. Síðan er ég með æfingar sem ég hef sér- staklega valið að nota til að byggja upp minn líkama, til að fá vöðva og verða st- inn. Þessar æfingar eru sérstaklega fyrir maga, rass og læri og síðan eru æfingar fyrir brjóst og handleggi. Æfingar sem ég nota eru eiginlega byggðar upp fyrir þær sérþarfir kvenna.” Gera konur sér grein fyrir nauðsyn hreyfingar? „Þegar ég var að byrja þá fannst mér mikil vakning meðal kvenna um hreyf- ingu og bætt vaxtarlag. En mér finnst margar ungar konur í dag, t.d. milli tví- tugs og þrítugs, hugsa of mikið um heimilin og börnin og gleyma því að 18 Skinfaxi

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.