Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.12.1991, Page 24

Skinfaxi - 01.12.1991, Page 24
M A T A R Æ Ð I ÍÞRÓTTAFÓLKS Jón Gíslason, næringarfræðingur, skrifar: Breyttar matarvenjur og aukin hreyfing Reglubundin líkamsrækt á stöðugt auknu fylgi að fagna hér á landi. Engum dylst að þjálfun eykur líkamlegt atgervi og hefur góð áhrif á andlegt ástand einstaklingsins, og þá ekki síst hjá þeim sem hafa það einnig að markmiði að grennast um nokkur kíló. Niðurstaðan er meiri hreysti og aukin vellíðan og iðulega fylgja breytt viðhorf hvað mataræði varðar. Það síð- astnefnda var reyndar staðfest í nýlegri könnun Manneldisráðs íslands á mataræði íslendinga, þar sem niðurstöður sýndu að þeir sem stunda líkamsrækt velja betri fæðu en aðrir. Það sama kemur fram í könnun á mataræði íþróttafólks, sem gerð var að til- stuðlan íþróttasambands íslands í samvinnu við Manneldisráð, en þess ber um leið að geta að bet- ur má ef duga skal. Mataræði og hreyfing Rannsóknir hafa sýnt að vandað fæðu- val og góðar neysluvenjur eru þættir sem eiga þátt í að auka þol og styrk þeirra sem stunda reglubundna hreyf- ingu. Það er því ekki að furða að niður- stöður kannana á mataræði sýni að íþróttafólk og aðrir sem stunda líkams- þjálfun reyni að vanda sitt fæðuval. Þeir þættir sem hafa mest áhrif eru kol- vetnaríkt fæði, ásamt minni neyslu fitu, og nauðsynleg vítamín og steinefni, þannig að þörf á vítamíntöflum og öðr- um slíkum “hollustuvörum” verður ekki fyrir hendi hjá þeim sem huga vel að sínu mataræði. Ef íþróttafólk tekur vítamíntöflur eða önnur slík bætiefni, er best að taka fjölvítamín og fara eftir þeim ráðleggingum sem eru á umbúð- um, þannig að neysla verði ekki umfram það sem þörf er á eða ráðlegt er. Þá er vert að hvetja til þess að máltíðir séu reglubundnar, þannig að orkuþörf verði fullnægt. Æfinga- og keppnistímar rekast oft á hefðbundna matmálstíma og því er mikilvægt að skipuleggja sitt mataræði eins og kostur er. Fleiri minni máltíðir eru þá betri kostur en fáar stór- ar. Kraftur í vöðvum Bestu kolvetnagjafar fæðunnar eru af- urðir úr jurtaríkinu, þ.e. brauð og annar kornmatur, auk garðávaxta (grænmeti og ávextir). Þeir sem borða kolvetna- ríka fæðu byggja upp kolvetnaforða (- glýkógen) í vöðvum og lifur. Þessi kol- vetni eru síðan brotin niður í blóðsykur (glúkósu) sem nýtist sem auðfenginn orkugjafi. Auk þess notar líkaminn fitu- sýrur til þess að mynda orku, en fitu- sýrubrennsla krefst meira súrefnis en brennsla blóðsykurs. Þar er komin skýr- ing á því að rannsóknir sýna að íþrótta- fólk, sem borðar kolvetnaríka fæðu. hef- 24 Skinfaxi

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.