Skinfaxi - 01.12.1991, Side 29
Þ I N G U M F í
Fréttir frá
sambandsþingi UMFÍ
Dagana 26.-27. október var 37.
sambandsþing UMFÍ haldið í
Húnavallaskóla, á sambands-
svæði USAH. Þingið sátu um 90
fulltrúar frá 20 sambandsaðilum
UMFÍ, auk stjórnar og gesta, alls
rúmlega 100 manns.
Púlmi Gíslason var endurkjörinn for-
maður UMFÍ til næstu tveggja ára.
Miklar breytingar urðu í stjórn. I aðal-
stjórn eiga nú sæti auk Pálma: Kristján
Yngvason FISÞ, Þórir Haraldsson HSK,
Sigurlaug Hermannsdóttir USAH, Jó-
hann Olafsson UMSE, Sigurjón Bjarna-
son UÍA og Ólína Sveinsdóttir UMSK.
í varastjórn eiga sæti: Matthías Lýðs-
son HSS, Ingintundur Ingimundarson
UMSB, Sigurbjörn Gunnarsson UMFK
og Gígja Sigurðardóttir UMSS. Sigur-
laug, Sigurjón, Ólína, Ingimundur og
Gígja eru nýir stjórnarmenn.
Fyrrverandi stjórnarmenn, þau Þórir
Jónsson UMSB, Sæmundur Runólfsson
USVS, Dóra Gunnarsdóttir UÍA, Magn-
dís Alexandersdóttir HSH og Flemming
Jessen USVH gáfu ekki kost á sér.
Mýir félagar bætast við
Tveimur nýjum félögum var veitt bein
aðild að UMFÍ, Ungmennafélagi Skipa-
skaga á Akranesi og Ungmennafélagi
Vesturhlíðar í Reykjavík. Eru sam-
bandsaðilar UMFÍ þá orðnir 31, þ.e. 19
héraðssambönd og 12 félög með beina
aðild.
Landsmóti frestað
Akveðið var að fresta 21. Landsmóti
UMFl, sem vera átti á Laugarvatni
1993, til ársins 1994. Ástæður frestunar
eru þær að bygging íþróttamannvirkja á
Laugarvatni mun ekki verða lokið fyrr
en árið 1994. Þá verða kannaðir mögu-
leikar á því að fyrirhugað Landsmót í
Borgarnesi verði haldið 1997 í stað
1996.
Ný reglugerð fyrir Landsmót UMFÍ var
samþykkt á þinginu eftir gagngera end-
urskoðun.
Unglingalandsmót í
Eyjafirði 1992
Samþykkt var að fela stjórn UMSE í
samráði við stjóm UMFÍ að standa fyrir
unglingalandsmóti 1992. Mótið er
Frá þingi UMFÍ. Hafsteinn Þorvaldsson fyrrverandi formaður UMFÍ í rœðustól.
Skinfaxi
29