Skinfaxi - 01.12.1991, Síða 30
Þ I N G U M F í
hugsað fyrir 16 ára og yngri og ætlunin
er að leggja áherslu á fjölbreytta
skemmti- og afþreyingardagskrá fyrir
alla.
Markmiðin með mótinu eru m.a. þau að
vinna gegn því að unglingar hætti
íþróttum og gera smærri sambandsaðil-
um UMFÍ kleift að taka að sér verkefni
á vegum UMFÍ.
Þrastaskógarhátíð
Á þinginu var samþykkt að stefna að því
að halda fjölskylduhátíð ungmennafé-
laganna ár hvert í Þrastaskógi, fyrst
1992. Tilgangur hátíðarinnar er að ung-
mennafélagar komi saman, kynnist bet-
ur og vinni að uppbyggingu og fegrun
svæðisins. Á fjölskylduhátíðinni verður
boðið upp á ýmsar skemmtanir, varðeld,
söng og keppni í starfsíþróttum.
Slysatrygging
ungmennafélaga
Á Alþingi síðastliðinn vetur var lagt
fram frumvarp til breytinga á núgildandi
lögum um almannatryggingar. Sam-
kvæmt frumvarpinu eru slysatryggingar
lagðar niður sem sjálfstæð grein al-
mannatrygginga. Frumvarpið dagaði
uppi en búast má við að það verði aftur
lagt fram á yfirstandandi þingi.
Á þingi UMFI var samþykkt að fela
stjórn UMFÍ að leita samninga um
Vísur frá þingi UMFI
Kveðskapur er mörgum í blóð borinn og
sjaldan hittasi ungmennafélagar án þess
að einhver setjifram vísur og Ijóð. Eftir-
farandi fyrripartar eru eftir Pálma Gísla-
son og seinnipartar eftir Hörð Sœvar Osk-
arson.
Byggjum upp og bœtum hag
boðum nýja tíma.
/ rúbertu ég rífupp slag
og rembist við að ríma.
Vertu ávallt viðbúinn
vini þína að styðja.
Helvíti ertu harðsnúin
með haftið um þig miðja.
Úrval landsins kvenna og karla
komið er í Húnaþing.
Meyjarblóma man ég varla
magnast hér og allt um kring.
Að hún nú drögum Hvítbláinn
hvatning ska/ hann okkur verða.
Avallt hreinn og hvítþveginn
hugsjónin skal okkur herða.
Byggjum upp og bætum hag
boðum nýja tíma.
Rœktum allir rofa flag.
Það reyndist auðveld glíma.
I tilefni afÁri söngsins
Látum þúsund radda róm
með reisn um landið klingja.
En tannlausir með tóman góm
trauðla kunna að syngja.
Einar Ole Pedersen.formaður UMSB,
skyggndist inn í hugarheim íþróttamanns-
ins á Ari söngsins og settifrá sér þennan
skemmtilega botn:
Látitm þúsund radda róm
með reisn um landið klingja.
Geng ég um á gaddaskóm
gaman er að syngja.
hópslysatryggingu fyrir alla ungmenna-
félaga, eða ákveðinn hóp þeirra.
Prúðmannleg f ram-
koma
Þá fagnaði þingið átaki KSÍ til að bæta
framkomu leikmanna í knattspyrnu og
beindi því til þjálfara og foreldra að gera
börnum og ungmennum grein fyrir
nauðsyn prúðmannlegrar framkomu í
allri íþróttakeppni.
Reyklaust ísland árið
2000!
Þingið hvatti ungmennafélaga til að
stuðla að tóbaksvörnum og að Island
verði reyklaust árið 2000.
Stjórn UMFI efri röðfrá vinstri:
Kristján Yngvason, Ingimundur
Ingimundarsson, Sigurjón Bjarnason,
Jóhann Olafsson, Þórir Haraldsson og
Sigurður Þorsteinsson framkvœmdastjóri
UMFÍ.
Neðri röðfrá vinstri:
Matthías Lýðsson, Olína Sveinsdóttir, Pálmi
Gíslason.formaður UMFI, Sigurbjörn
Gunnarsson og Sigurlaug Hermannsdóttir.
Jón Ólafsson frá Hólmavík, formaður
HSS, hafði orðiðfyrir óhappi skömmufyr-
ir þingið og mœtti til þings með miklar
umbúðir um gagnaugað. Afþví tilefni
setti Ingimundur Ingimundarson, forstöðu-
maður sundlaugar Kópavogs,fram eftir-
farandi limru :
Glóðeygður gekk hann í salinn,
með glettni var litið á halinn.
En fjölmiðlamúsa-Jón hefur fáheyrðan tón
ogfráleitt eru talfœrin kalin.
Jón hafði sagtfrá því ífjölmiðlum að mýs
herjuðu á Hólmvíkinga, kötturinn vildi
ekki sjá þœr og vœri orðinn snaróður.
Stefán Gíslason sveitarstjóri vildi draga
úr músafaraldrinum og taldi þessar mýs
eingöngu verafjölmiðlamýs. Ingimundur
setti þáfram aðra limru:
Mýsnar á Hólmavík herja
með hörku þorpið þeir verja.
En Stefán og Jón stara eins og flón
á snaróðan köttinn og berja.
'K
30
Skinfaxi