Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1945, Qupperneq 21
6JÖGUR5VITI
NOROURFJÖRfiUR
ORKIN
ARNES-
TlNDUR
0 RftNGA-
JÖKULL
i
i
i
URÐAR-
TIN DUR
REYKJANES-
HYRNA
KÁLFATINDUR
Landsýn við Reykjarf jörð:
Landið er séð frá stað, sem
er 3,7 sjómílur í réttvísandi
105° frá Gjögurvita, en það
er í miðinu, sem halda skal
eftir inn til Reykjarfjarðar
fyrir sunnan Marhnútsgrunn.
Á myndinni sést miðið rétt
tekið, en það er þegar Stóri-
Hnúkur er genginn það mikið
undan Sætrafjalli, að Uglur,
sem eru tveir steinar í norð-
urhlið Hnúksins, eru komnir
í Ijós, liggur miðið hér um bil
mitt á milli Marhnútsgrunns
og 17 m. grunnsins. Myndin
er teiknuð af P. S.
urinn liggur í norður og suður, og er um 3
sjóm. á lengd. Mesta dýpi í Byrgisvíkurpoll-
inum er 272 m., nokkru NV af Ilrygg.
í mynni Reykjarfjarðar eru nokkur nýfund-
in grunn. Syðst eru tveir mjóir hryggir,, annar
með 19 m. en hinn með 23 m. dýpi. út fra
þeim snardýpkar. f miklum sjó hafa þar sést
brot. Norðar, suður af Barmi og Marhnúta-
grunni (4,3), liggur fláki með 25—30 m. dýpi
all-langt suður eftir. Grynnst hafa þar fund-
ist 17 m., tæpa sjómílu suður af Marhnúta-
grunni.
Norður af Gjögri, út af Reykjaneshyrnu,
þar sem stendur „Braad“ í kortinu, fannst 14
m. dýpi. Þar brýtur í miklum sjó. Þar sem
þetta grunn er beint í miðinu, er leiðir milli
Barms og Létthöfða (Kaldbakshorn fram und-
an Kolbeinsvíkurfjalli), — eins og það er sýnt
á. mynd í Leiðsögubókinni, þá er það mjög
varasamt. Sé miðið hinsvegar tekið eins og
sýnt er á meðfylgjandi mynd, er farið fyrir
vestan grunnið, en þó vel laust af Létthöfða.
Aulc þessa miðs voru teiknaðar myndir af
allmörgum öðrum miðum á þessum slóðum, og
koma þær væntanlega í nýrri útgáfu Leiðsögu-
bókarinnar.
VtKINGUR
21