Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1945, Síða 25

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1945, Síða 25
Mirmingarorð Einn þeirra góðu drengja, sem féll fyrir helkló ófriðarins, var Þórir Ólafsson, stýrimaður á e/s Goðafossi. Tæplega get ég enn trúað því, að þessi góði og glæsilegi félagi okkar, sem altaf horfði björtum augum á lífið og framtíðina, sem hann sá ævinlega fulla af fyrirheitum, hafi verið tekinn frá okkur svo snemma á æviskeiði sínu. Þórir heitinn var fæddur á Akureyri hinn 14. maí 1905. Hann var sonur heiðurshjónanna Ólafs Fr. Ólafssonar og Jakobínu, konu hans, Spítalastíg 15 á Akureyri. Þórir ólst upp í föðurhúsum, en á sumrum var hann í sveit. Hann sagði mér oft frá hinum mörgu ánægjustundum, er hann sat kvíaær tryggari samgöngur og skilyrði til að gera út stærri skip. Á annan hátt hefur það líka gildi eins og er. Mest allur sjór er sóttur vestur á bóginn, og með því að geta farið beint gegnum Eiðið, styttir það vinnutíma sjómannanna um hálfa til heila klukkustund í róðri og sparar olíu fyrir um þúsund krónur á öllum flotanum í hverri sjóferð. Austanáttin hefir öldum saman rænt Vest- mannaeyinga fjöri og frelsi. Því fyrr sem þeir loka „bæjardyrum“ sínum fyrir henni og opna þær gegn átt heiðríkjunnar, því betra. Þá geta sjómennirnir siglt hiklaust í trygga höfn, eftir að landi er náð og eyjabúar og ferðamenn rennt upp að bryggju á stórum farþegaskipum, hvernig sem veðri er háttað og á sjó stendur, við hina fögru og kostaríku Heimaey. hjá föðurbróður sínum frammi í Eyjafirði, og eitt sinn man ég að hann sagði: „Ekkert getur verið áhrifaríkara en að vera einn, aleinn, úti í náttúr- inni á æskuárunum. Þá fyrst finnur maður, hve átt- hagarnir geta verið aðlaðandi og ísland fagurt og tignarlegt land.“ Og hann vann fyrir þetta land meðan hann lifði. Á síðustu árum, eftir að ófriður- inn hófst, var hann á vígvelli hafsins að sækja björg í bú landsins og flytja afurðir þess. Ekki fékk hann að hvíla í skauti fósturjarðarinnar fögru, því að hafið tók hann til sín og geymir hann í sinni köldu gröf. Hafið hafði snemma heillað hann, eins og það fyrr og síðar hefir vakið útþrá ungra manna. Hann stóðst ekki freistinguna, að fara út á þennan bláa sæ, því að hann heyrði „eitthvert undralag" og hann fór, því að fyrir landi lá „borðfögur skeið með bundin segl við rá.“ Þórir heitinn var þá á unga aldri. Fyrsta verzlunarskipið, sem hann réðst á, var e/s Goðafoss, sá sami, sem hann endaði ævi- starf sitt á. Hann var líka á öðrum skipum, unz hann fór í Stýrimannaskólann og lauk prófi þaðan 1930. Næstu ár var hann ýmist háseti eða stýri- maður á e/s Lagarfossi og síðar fastur stýrimaður þar. Eg gleymi aldrei fyrsta kvöldinu, sem ég sá Þóri heitinn, og þegar ég heyrði um fráfall hans og hinna annarra góðu drengja, hvarflaði hugurinn ó- sjálfrátt langt inn í þoku endurminninganna til þessa kvölds. Það var í ágúst fyrir tólf árum, að ég gekk feiminn og hikandi upp á brúna á e/s Lag- arfossi til að taka ,,stýristörn“, þá sem viðvaningur. Stýrimaðurinn, sem á brúnni stóð, var Þórir Ólafs- son, hávaxinn og glæsilegur, fríður og fasmildur, og leiðbeindi hann mér ljúfmannlega, hvernig fara skyldi að. Síðan unnum við saman um átta ára skeið. Margs væri að minnast frá þeim árum, en til þess er ekki rúm hér. Margar erfiðar vaktir áttum við saman og sigldum yfir marga báru, en einnig margar gleðistundir á frídögum. Þórir Ólafs- son var einn af þeim fáu mönnum, sem aldrei lét frá sér heyra reiðiorð eða stóryrði. Hann var alltaf glaður og uppörvandi, enda mun hann hvergi hafa átt óvin, en þeir eru fáir, sem það verður sagt um. Þórir heitinn var búinn að vera tíu ár í farsælu hjónabandi. Hann giftist hinn 21. júní 1934 Þórunni Rögnvaldsdóttur, og áttu þau eina dóttur barna, sem nú er níu ára. Kæri vinur! Þessi orð eru of fá; en ég enda þau með þakklæti fyrir liðin ár, er við vorum saman. Æviskeið þitt var stutt en fagurt, og mörgum sam- tíðarmanni þínum hefir orðið ávinningur að kynn- ast þér. Þú hefir sjálfur reist þér minnisvarða, sem engin mannshönd eða stríðsógnir geta brotið, því orðstírr deyr aldrigi hveims sér góðan getr. VtKINGUR 25

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.