Sjómannablaðið Víkingur

Ukioqatigiit

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1945, Qupperneq 35

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1945, Qupperneq 35
Friðrik Haildórsson loftskeytamaður Fæddur 19. marz 1907. Látinn 18. okt. 1944. Kveðja frá starfsbræðruni. Skyndilega skildust leiðir, skugga yfir vetrar hrá sumarbjartar samstarfsliciðir. Sakna að oss kenndum slá. Friðrik, utan er þig seiðir uldurlag um stórasjá fjörsins. Milli firðir breiðir frænda og vina urðu þá. — Stult og fögur ævi endi. Yfir henni drengraun skein. Anda ]>íns var akurlendi illgresislaus hveitirein. Allt var þinni heilt af hendi. Hvert þitt ómergsvikið bein. Hver þér unni, ef þig kenndi. -— Eftir lifir íninning hrein. Svaribræður kærast kveðja, kunnin þakka og samstörf góð. Drúpa eins og hörn og heðja bölir yfir reknri glóð. Muna, hversu gagna og gleðju geymdirðu við örlögflóð. Þar til hneit þér sjúkdómssveðja, — svanurinn kvað sitt hanaljóð. Bræður þínir hlysið taku bleiktri þinni ltendi úr. Fylkja liði. Á verði vaka. Vita niður rignir skúr. -—• Hálfkveðin þíns starfa stuka stuðlast fratn úr aldu dúr. Gimar upp til Gintlés braka. Geimar brenna skapanfúr. Lárus Sigurjónsson. Frá Slysavarnafélagi / Islands „Þorsteini“ breytt í mótorbjörgunarbát fyrir Reykjavík og nágrenni Stjórn Slysavarnafélagsins hefur nú ákveðið, að flyja björgunarbátinn „Þorstein" til Reykjavík- ur og breyta honum í mótorbjörgunarbát með tveim kraftmiklum hreyflum og tvennum skrúfum. Mun vélsmiðjan Keilir taka að sér breytinguna á bátnum. Það voru hjónin Guðrún Brynjólfsdóttir og Þor- steinn Þorsteinsson skipstjóri í Þórshamri, sem gáfu bát þenna á sínum tíma, og hafa þau nú sam- þykkt, að honum verði breytt í mótorbjörgunarbát. Björgunarbáturinn „Þorsteinn“ er hinn bezti gripur og mjög til hans vandað að öllu leyti. Hann er um 12 metrar á lengd og þrír á breidd. Hann á að geta tæmt sig sjálfur, þótt hann fylli af sjó, og rétt sig við aftur, þótt honum hvolfi eða stafnstingi. Kjölur bátsins — það af honum, sem er úr tré — er úr kanadiskum klettaálmviði. Stefnin eru úr eik, böndin úr klettaálmviði, en byrðingurinn allur og þilfarið úr „Honduras Mahogany“, tvöfaldur, þannig, að borðin koma þvert hvert á annað. Sama vandvirkni er á öllu, sem bátnum fylgir. Báturinn hefur frá því fyrsta haft bækistöð í Sandgerði og verið geymdur þar í húsi. Sandgerð- ingar hafa nú fengið annan bát léttari og heppilegri fyrir þeirra staðhætti. Ákveðið er, að „Þorsteinn" fái bækistöð í Örfiris- ey, og hefur þegar verið tryggð lóð þar fyrir björg- unarstarfsemina. Hefur verið keyptur hermanna- skáli fyrir 10 000 krónur, en í ráði er að byggja sporbraut og að öllu leyti fullkomna björgunarstöð þar. Áætlað er, að þau mannvirki, fullbúin, muni kosta ,um 200.000 krónur. Breytingunum á „Þorsteini“ miðar vel áfram, og er þess að vænta, að hann geti tekið við hinu nýja hlutverki sínu hér áður en langt um líður. Trúlofunarhringar, BORÐBÚNAÐUR, TÆKIFÆ.RISGJAFIR í góSo úrvall. Guðm. Andrésson, gullsmiður, Laugaveg 50 — Sími 37 69 VÍKINGUR 35

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.