Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1951, Side 23

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1951, Side 23
I Emil G. Pétursson, vélstjóri: Litlu skáldin Oft heyrir maður og les um það, hve við íslendingar séum söngfróðir, bókhneigðir og yfirleitt mikið gefnir fyrir allan skáldskap. Er þetta víst að mörg leyti rétt. Við eigum og höfum löngum átt ljóða- og söguskáld, og nú á þessi litla þjóð orðið skáld í höggmynda-, tón- og málaralist, sem hún getur verið hreykin af. Við eigum líka, fyrir utan stórskáldin okkar, hag- yrðinga, er geta mœlt jafn leikandi á bundnu máli og1 óbundnu. Hygg ég að það sé fátítt hjá hinum fjöl- mennari þjóðnm, að skáldskapurinn liggi eins létt í tungu og hjá okkur. Er það þá nokkuð, sem getur vakið undrun okkar hvað viðkemur skáldskap? Jú. Eitt er það, sem vakið getur furðu. Það er ein stétt manna, bæði kvenna og karla, sem við getum kallað smásagnahöfunda eða skáld. Þessum litlu skáld- um höfum við ekki veitt athygli, svo sem þeim ber, því ið þau eiga það vissulega skilið, að þeim sé meiri gaumur gefinn en verið hefur, þvi að hugmyndaflugið hjá þeim er aðdáunarvert. Að við höfum ekki gefið þeim meiri gaum en orðið er, stafar máske af því að þau eru svo fjölmenn og almenn meðal ailra stétta þjóðfélagsins, að við tökum þeim sem sjálfsögðum hlut. Annað er það líka, er varnar því að eftir þeim sé tekið, það er þeirra fram- úrskarandi hæverska. Þessi smásagnaskáld koma víða við og mæla sögur sínar af munni fram, en rita þær ekki eða gefa út i bókarformi. Snilligáfu hafa þau oft og margt skemmti- legt og vel upp fundið kemur frá þeim. Þau segja sögur sínar oftast í eyru manna. Sjálfsagt viðurkenna þau ekki frumburð sinn; það gjörir lítiliæti þeirra, en scgjast hafa heyrt söguna annars staðar frá. Frá því land okkar byggðist, höfum við fslendingar haft gaman af sögum og frásögnum, og geta hlustað á og sagt frá, og svona er það enn hjá okkur. Við hlustum til dæmis á litlu skáldin segja sögur sínar. Það er hlustað á þau í bridgeklúbbum, sauma- ldúbbum og alls staðar þar sem þau birtast, og svo fær sagan vængi og flýgur út á meðal fólksins, en skóldið, höfundur sögunnar, hverfur eins og reykur, sem fer út í loftið og leysist upp. Þetta er afar leiðinlegt, að þau vegna lítillætis síns skuli hverfa svona, því að sögur þessara smáskálda eru oft bráðskemmtilegar og vel sagðar. Þær fjalla venjulega um einhvern sam- borgara þeirra. Gæti nú hitzt svo á, að þann eða þá, sem orðið hafa fyrir því happi að verða uppistaða í skáldskap þeirra, langaði til þess að þakka fyrir heiðurinn, og er þá leitt að geta ekki fundið höfundinn. Til þess að bæta úr þessu, langar mig til að koma þeirri hugmynd minni á framfæri, að þegar einhver hittir og hlustar á einhvern af þessum höfundum, þá spyrji hann að því, hvort hann sé sjálfur höfundurinn, og er skáldið svarar, að það hafi heyrt. söguna, þá inna það eftir hvar og hjá hverjum. Það getur ef til vill farið svo, að smáskáldið vegna feimni sinnar og lítillætis legg'i þá árar í bát og hætti öllum smásagna- skálðskap, en maður verður að hætta á það. Þessi stétt manna er það fjölmenn, að mér finnst enginn skaði skeður, þótt henni fækki svolitið. Gæti þá máske farið svo, að þeir, sem eftir lifðu af stéttinni, byi'juðu að skrifa sögur sínar og gefa þær út á prenti og enduðu ef til vill með því að tilheyra stóru skáldunum okkar, og væri þá vel farið. Oddur Sigurgeirsson. iVÍKIN G U R 163

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.