Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1953, Blaðsíða 23

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1953, Blaðsíða 23
lega var þýðingarlaust að elta lengra, þeir sænsku voru nú rétt hjá sínum eigin höfnum og Danir hafa sjálfsagt verið búnir að fá nóg af baráttunni. Niels Juel venti nú sínu kvæði í kross og hélt heim á leið, til að endurnýja vistir og gera við skaðann. Sjóorustan endaði með fulkomnum sigri. Ekkert danskt skip hafði eyðilagzt. Aftur á móti vofu þessi sænsk skip tekin herskyldi: „Drekinn" „Cæsar“, „Marz“, „Fljúgandi varg- ur“ og „Sænska ljónið“, alls með 239 fall- byssum; þar að auki nokkur smáskip. En sig- urinn átti að verða miklu meiri en þetta. Með- an fallbyssuþrumurnar gengu í Köge-flóa, og örlög Danmerkur útkljáðust, meðan Niels Juel og félagar hans skrifuðu nöfn sín með eld- letri í hina stóru bók sögunnar, lagðist fyrir ankerum við Helsingjaeyri stór, hollenzkur floti, 18 skip samtals, með 600 fallbyssum. Við hún á flaggskipinu, sem hafði 76 byssur, blakti veifa Willems Bastianszen Scheppers, yfirfor- ingja, og á afturþilfarinu stóð hvorki meiri eða minni persóna en Tromp. Það var hinn danski aðalflotaforingi, sem var að koma til þess að taka við stjórn og stöðu sinni. Sem danskur flotaforingi gat hann engu ráðið um borð í hollenzku skipunum og varð þess vegna að fylgjast með flotanum sem farþegi. Svo nær- staddur hafði hann verið stærstu sjóorustu á norðurhveli — og samt svona fjarri. Hvernig var Tromp innanbrjósts, þegar hann kom um kvöldið til Kaupmannahafnar og heyrði múginn fagna hinum mikla sigri, sem undirmaður hans, Niels Juel, hafði unnið -— stórsigri, svo hann hafði aldrei slíkum náð og gæti heldur ekki nokkurn tíma búizt við að vinna? Tæplega hefir þetta verið honum gleðiefni. Svo ólýðþekkur sem Tromp var, munu þeir dönsku varla hafa dregið af afreksverki landa síns. Sárabætur voru þó, að það var dálítið eftir handa Hollendingum að gera, því að við Málmey lágu 3 af fylgiskipum „Drek- ans“, sem höfðu komizt út úr orustunni. Hinn 3. júlí tóku Hollendingarnir tvö þeirra, en það þriðja brann og eyðilagðist eftir að skipverjar höfðu yfirgefið það. Þetta var betra en ekk- ert, en satt að segja voru það hálfgerðar innan- sleikjur af stórsigri Nielsar Juels í Kögeflóa, en samt voru það orustulokin. Með þessu tapi var sænski flotinn í bráð og lengd ófær til að geta orðið danska flotanum hættulegur keppinautur í Eystrasalti. Hin þjóðlega hlið sigursins var öllum ljós. Tromp fann það sjálf- ur, og var það síður en svo til þess að auka vinarþel hans til Nielsar Juel, og nú hafði V í K I N G U R Kristján konungur V. fullt í fangi með að sansa Hollendingana. Auðvitað dró Tromp fána sinn upp sem efsta foringjamerki, en ósanngjarnt og óþolandi var það, að Bastianszen Scheppers krafðist stöðu fyrir ofan Niels Juel, en þá setti konungurinn sig þvert á móti. Stríðið við Skán stóð enn um tveggja ára skeið. — Á sjónum höfðu Danir yfir- burði og gátu gert það, sem þeir vildu, en það, sem ávannst á sjónum, tapaðist því miður alltaf á landi, þar sem danski herinn var að öllu óheppnari. Nú varð Niels Juel mótmæla- laust æðsti foringinn, því að Tromp dró sig til baka árið 1678. Með tímanum hafði frekja hans orðið óþolandi og hann fann sjálfur, áð jörðin brann undir fótum hans. Danir grétu ekki burtför hans. Þrátt fyrir persónulega hreysti Tromps var hann ekki verður sem flotaforingi að leysa skóþvengi Nielsar Juel, og hin drembilega og hranalega framkoma hans stakk algjörlega í stúf við hina háttvísu sam- landa hans, sem höfðu barizt með Dönum um 20 ára skeið, og í broddi fylkingar slíkra manna lýsir sér hinn göfgi persónuleiki flotaforingj- ans Michiel Adriaanszoon de Ruyter. Árið 1678 blakti flagg Nielsar Juel yfir þeim stærsta flota, sem Danmörk hefir nokkru sinni átt: 31 línuskip, 9 freigátur, 3 tundur- bátar og fjöldi af smáskipum, sem samtals hafði yfir 2000 fallbyssum. Honum var lítil mótstaða veitt, enda veittist honum auðveldur sigurinn við Riigen. Þar mættust Tromp og Juel aftur, því að Tromp hafði gengið í brand- enburgska þjónustu. Þegar nú.báðir aðilar voru orðnir þreyttir á stríðinu, var friður sam- inn í Lundi. Vesæll varð árangurinn af allri fyrirhöfn Nielsar Juel. Þegar Danir réðu ráð- um sínum við samningsborðið, létu þeir af hendi allt, sem hann hafði unnið, þar á meðal Gotland, en það voru stærri mál en þetta uppi á teningnum, þegar sambandsríki Svíþjóðar, Frakkland, ógnaði í suðrinu með hervæðingu. Næstum því í 20 ár, eða þar til 1697, var Niels Juel æðsti foringi flotans. Hann skapaði það, sem varð í áraraðir stolt Danmerkur. Þau þýzku áhrif, sem þá annars gegnsýrðu koliungshirðina og herinn, fengu aldrei fótfestu í flotanum. Kristján konungur VI. hafði mik- inn áhuga á að fylgjast með og efla flotann, en hann talaði og skrifaði alltaf þýzku og gekk framhjá hinni dönsku tungu, sem Niels Juel hafði valið öndvegi. Ef konungurinn skrifaði á þýzku, var svarið frá hinum örugga flota á dönsku, og litla orðið „von“, sem sett var framan við nöfn allra landherforingja (hvort 211

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.