Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1953, Síða 26
1/8. 3 menn, sem stunda hrefnu-
veiðar frá Húsavík á bátnum Björg-
vin, veiddu í morgun 8 metra lang-
an beinhákarl, eftir klukkustundar
bardaga við skepnuna. — Verð-
jöfnun á olíu og benzíni kemur til
framkvæmda í dag. Hækkar verðið
í Reykjavík, en lækkar annars stað-
ar á landinu.
•
5/8. Á3ja hundrað trillubátar hafa
stundað veiðar í vor. I Austfirðinga-
fjórðungi voru þeir t. d. 64 í s.l.
mánuði. — Afskipan freðfisks til
Rússlands er þegar hafin. Vitað er
um 3 skip, er fara með fyrstu farm-
ana, og eru það Drangajökull, Vatna-
jökull og Goðafoss. — 213 hvalir
hafa veiðst frá vertíðarbyrjun. —
Togarinn Gylfi fékk metafla á
Grænlandsmiðum, 454 smálestir.
•
7/8. Heildarsöltunin nemur 134.490
tunnum síldar. Hæst á Raufarhöfn
er Hafsilfur með 10.100 tunnur. —
Hlutur allt upp í 800 kr. á dag
hjá hásetum á rækjubátum frá
Isafirði í síðustu viku. Um 86
stúlkur vinna við skelflettingu, og
kemst kaup þeirra upp í 150—160
kr. á dag. — Ungum manni tókst
að klífa Hornbjarg, 400 m. hátt. —
Búið er að ná 10 lestum járns á
Dynskógafjöru.
•
8/8. Landsíminn lætur tryggja
radíótæki í skipum og bátum. —
Rússneska olían, sem Islendingar
eiga að fá, verður flutt með norsk-
um skipum frá Svartahafshöfnum.
•
9/8. Leiðangur brezka fuglafræð-
ingsins Scotts merkti um 9000
heiðargæsirheiðargæsir á Þjórsár-
verum. Hyggst Scott koma hér
næsta ár og rannsaka endur við
Mývatn. — 20 þúsund laxaseiðum
sleppt í Eyjafjarðará. Seiði þessi
eru af laxastofni úr ölfusá.
•
12/8. Þrír menn fóru á bát vatna-
leiðina milli Laugarvatns og Sel-
foss. Siglt var um Laugarvatn,
Hólaá, Apavatri, Brúará, Hvítá og
ölfusá, 70—80 km. leið. — Málgagn
Verzlunarráðs íslands segir, að
Sovétviðskiptin dragi mjög úr skorti
okkar á dollurum og sterlingspund-
um. Einhverjir hagstæðustu vöru-
skiptasamningar, sem Islendingar
hafa nokkru sinni gert. — íslenzk
samninganefnd er að hefja viðræð-
ur um viðskiptasamninga í Prag
við Tékka og Austurríkismenn. —
52ja feta hvalur veginn allur í
stykkjum í hvalstöðinni. Nákvæm
rannsókn gerð til þess að athuga,
hve mikið slík skepna leggur sig.
— Sjálfritandi dýptarmælar fyrir
trillubáta komnir til landsins.
•
13/8. Friðrik Ólafsson er orðinn
Norðurlandameistari í skák. Er
þetta í 3ja sinn, sem Island vinnur
á skákmóti Norðurlanda. Tungufoss
heitir hið nýja skip Eimskipafélags
íslands, sem hleypt var af stokk-
unum í Kaupmannahöfn nýlega.
•
15/8. Pólska skemmtiferðaskipið
Batory er komið hingað með 625
farþega, aðallega frá Frakklandi og
ítaliu. Munu þeir dveljast hér í
tvo daga. — Smokkfiskur er far-
inn að veiðast á Vestfjörðum og
þykir það boða aflasæla vertíð.Hann
hefir ekki veiðzt að ráði síðan 1947.
Er hann einhver bezta beita, sem
völ er á.
•
16/8. Ráðgert að kanna, hvort rækj-
ur veiðist útaf Skagafirði. Bygging
fiskiðjuvers á Seyðisfirði er hafin.
Heildarkostnaður er áætlaður 4
millj. kr. — Enn er ósamið milli
F. 1. B. og Sölumiðstöðvarinnar um
verð á togarafiski. Margir tog-
aranna liggja, en nokkrir stunda
veiðar í salt. — Stokkseyringar eru
að sækja nýjan fiskibát til Dan-
merkur.
•
19/8. 2 brezkir stúdentar týndust
nýlega á Öræfajökli, og liefur þeirra
verið mjög mikið leitað, en án ár-
angurs. — Vík í Mýrdal er hætta
búin í vatnavöxtum, ef ekkert verð-
ur að gert. Iívísl úr Múlakvísl hef-
ur brotizt yfir Kerlingadalsá og
leitar hún nú vestur. Mikill vöxtur
er í ám í V.-Skaftafellssýslu.
•
20/8. Bíll hrapar þrjár mannhæð-
ir niður í árgljúfur. Systkini, sem
voru í bílnum, sluppu ómeidd.
•
21/8. Sérfræðingar kanna virkj-
unarmöguleika í fallvötnum lands-
ins. Þriðja virkjun Sogs í undir-
búningi. — Búið er að gera sölu-
samninga við Sovétríkin, Pólland,
Tékkóslóvakíu og Finnland, og hafa
verið seld yfir sex þúsund tonn af
freðsíld. •
23/8. Bandarísk herflugvél fórst
í lendingu á Iíeflavíkurflugvelli.
Nokkrir særðust og einn lézt.
25/8. Vélar nýju rafstöðvarinnar
við írafoss settar í gang i lok sept.
Vatni var hleypt á göngin aðfara-
nótt s.l. fimmtudags. — Vatnslaust
við skipbrotsmannaskýlið í Dritvík
og hálftíma gangur í næsta læk.
Utbúnaður hefur verið settur upp
til að safna rigningarvatni til
drykkjar. — „Ægir“ reynir Adic-
tækið á síldarmiðunum nyrðra. Fann
síld í 1500 m fjarlægð. — Varð- og
eftirlitsskipið María Júlía er í
Faxaflóa við fiskrannsóknir á veg-
um fiskidcildar atvinnudeildar Há-
skólans. — Varðskipið Þór er á
heimleið að' lokinni viðgerð.
•
26/8. Dr. Helgi P. Briem afhenti
í gær forseta Júgóslavíu, Tító mar-
skálki, trúnaðarbréf sitt sem sendi-
herra íslands þar í landi. — 42.000
tonn af grjóti fóru i veg og varn-
argerð fyrir sandþróna á Akranesi.
Vegurinn líklega tilbúinn í byrjun
september. — Veiðar fyrir Þýzka-
landsmarkað að hefjast. — ölæðing-
ar heimsóttu kirkjuna á Seyðisfirði
og skemmdu þar gripi marga.
•
27/8. Bryggja gerð á Kársnesi í
VÍKINGUR
214