Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1953, Síða 27

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1953, Síða 27
 ■ ERLFNDAP. Kópavogshreppi. Bátar og jafnvel hafskip eiga að geta Iagzt að henni. Vaxandi útgerð í Iiópavogi. • 28/8. Hafnargarðurinn í Rifi hef- ur verið lengdur um 100 metra í sumar. — Búið er að bjarga milli 250—300 tonnum af járni úr Dyn- skógafjöru. Járnið er á 5—10 m dýpi og sjórinn gengur yfir það strax og brima tekur. — Tveir 53 tonna bátar smíðaðir innan skamms í Hafnarfirði. — öskjuvatn hefur lækkað um 66 cm. • 29/8. Mikil og jöfn síldveiði var hjá Faxaflóabátum í fyrrinótt og er farið að salta í flestum ver- stöðvum. — Tveir íslenzkir tog- arar, Austfirðingur og fsólfur, éru nú komnir á karfaveiðar fyrir Rússlandsmarkað. — Miklar fram- kvæmdir í Ólafsvík og blómlegt at- vinnulíf þar. Um 160 aðkomumenn vinna nú við ýmiss konar störf í kauptúninu.— Um 1000 tunnur síld- ar berast daglega til Sandgerðis. erlendar frétttir. 1/8. Taft, leiðtogi republikana í öldungadeildinni, er látinn. — Rússneskar orrustuflugvélar skutu niður bandarískt risaflugvirki und- an strönd Síberíu. • 5/8. Mikið manntjón hefur orðið af flóðum i fran. — Rússar hafa nýlega samið við Hollendinga um kaup á 150.000 tunnum síldar. — Mexikó-stjórn hefur bannað inn- flutning á wiský frá Bretlandi, Bandaríkjum og ICanada. — Hohen- zollern-safnið þýzka rænt um helg- ina. Tóbaksdósum Friðriks mikla og fjölmörgum öðrum dýrgripum stol- ið. Verðmæti þýfisins mun vera 150 millj. kr. — Rússneskar könn- unarflugvélar hafa flogið inn yfir V.-Evrópu. 6/8. Eldur í 10 hreyfla flugvirki yfir Atlantshafi. Eftir 50 mínútur steyptist það alelda í djúpið. — Japanski ríkiserfinginn hefur verið í Kaupmannahöfn að undanförnu.— Fangaskipti hófust í Panmunjom í gær. — Miklir viðskiptasamningar milli Kína og Japans eru að hefj- ast. Bretar undirbúa nýjar viðræð- ur við Kina. • 7/8. Mark Clark yfirhershöfðingi S. Þ., lætur af herstjórn. • 8/8. Atvinnulíf og samgöngur lam- aðar af verkföllum í Frakklandi. — Tvær til þrjár millj. manna hafa Iagt niður vinnu, og er þetta mesta verkfall þar siðan 1936. — Gagn- kvæmur öryggissáttmáli Bandaríkj- anna og Suður-Iíóreu var undirrit- aður i morgun. • 11/8. Islendingar og Danir kepptu milliríkjakeppni í knattspyrnu í Kaupmannahöfn og unnu Danir 4:0. • 12/8. Verkföll breiðast ört út um ítaliu. — Geysiharður jarðskjálfti varð í gærmorgun á Jónisku eyj- unum við vésturströnd Grikklands. Tveir bæir hrundu gersamlega í rúst á eynni Kefallonia; hundruð manna dánir og slasaðir. • 13/8. Algert öngþveiti er orðið i Frakklandi af verkföllunum. Mat- vælaskortur í borgum er fyrir dyr- um og þúsundir ferðamanna teppt- ir i landinu. — Til mála hefur kom- ið að leitað verði fjársjóða í flaki Titanics. Leyndardómsfullar athafn- ir, þar sem hafskipið sökk fyrir 41 ári. 14/8. 200 þús. manns heimilislaus- ir á Jónisku eyjunum. Hvert ein- asta liús á Kefallonía er jafnað við jörðu. Jarðhræringar torvelda björg- unina. • 15/8. 4 milljónir manna taka þátt í verkföllunum í Frakklandi. Verk- Fóllin eru þó heldur í rénum. e 17/8. Reynt var, en árangurslaust, að steypa Mossadegh. Iranskeisari er farinn úr landi. — Fiskimaður í Durban í S.-Afríku, fékk nýlega 1500 punda hákarl á færi. — Norð- menn munu senda níu hvalveiða- leiðangra til Suðurhafa í vetur. Verður bræðsluskip með hverjum. — Allsherjarþing SÞ hefur um- ræður um stjórnmálaráðstefnuna í dag. • 18/8. Unnið er kappsamlega að lausn frönsku vinnudeilunnar. — Hinar mestu flotaæfingar, sem fram hafa farið á Norður-Atlantshafi, verða haldnar um miðjan septem- ber n.k. Floti og fluglið 9 þjóða Atlantshafsbandalagsins munu taka þátt í æfingum þessum. • 19/8. Churchill sat í gær aftur fund ráðuneytis síns, eftir langa fjarveru vegna veikinda.— Keisara- sinnar í Persíu hafa náð völdum þar. Ókunnugt er um afdrif Mossa- deghs. — 1 stjórnmálanefnd SÞ er deilt um það, hvort Rússar og Indverjar fái aðild að stjórnmála- ráðstefnu varðandi framtíð Kóreu. • 20/8. Bretar takmarka fleskinn- flutning sinn frá Danmörku. • 21/8. Mossadegit hefur verið handtekinn, en keisarinn er á heim- leið. Allt er talið með kyrrum kjör- um í Persíu í gær og keisarasinnar hafa þar öll völd. — Rússneska stjórnin hefir tilkynnt, að nýlega hafi verið sprengd vetnissprengja í tilraunaskyni í Rússlandi. — Frakk- ar hafa hrakið soldáninn i Marokkó frá völdum. Hann fer í útlegð til Iíorsíku. — Frönsku verkföllin eru svæsnari en fyrr. 600 þús. málm- iðnaðarmenn eru nú að bætast við. • V í K I N G U R 215

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.