Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1953, Síða 30
SJÓMANNABLAÐIÐ VÍKINGUR
Útgefandi:
Farmanna- og jiskimannasamband íslands.
Ritstjóri og ábyrgðarm.: Gils Guömundsson.
Ritnefnd:
Július Kr. Ólafsson, Henry Hálfdanarson, Magnús
Jensson, Halldór Jónsson, Sveinn Þorsteinsson,
Birgir Thoroddsen, Theódór Gislason. — Blaðið
kemur út einu sinni í mánuði, og kostar árgangur-
inn 50 krónur.
Rltstjórn og afgreiðsla er í Fiskhöllinni, Reykjavík.
TJtanáskrift: „Víkingur", pósthólf 425, —
Reykjavík. Sími 5653.
Prentað i Xsafoldarprentsmiðju h.f.
að koma skipi sínu hlöðnu heilu og höldnu í
höfn er viðbrugðið. Hélt hann sig þá oft nærri
landi til að fá var og fór ýmsar grunnslóðir,
sem fáir þorðu eftir honum að leika og munu
fáir hafa þekkt betur fáfarnar siglingaleiðir
en hann.
Einu sinni voru skipstjórar að ræða við
Guðmund um fjörð einn á Hornströndum, sem
þeir töldu ómögulegt að komast inn í vegna
grynninga. Gall Þá Guðmundur við og sagði:
„Ekki hefir mér reynzt hann ófær og hvergi
hef ég tekið niðri þar“.
Áhuga, eftii’tekt og fyrirhyggju í öllu því,
sem hann tók sér fyrir hendur, átti Guðmund-
ur frá Tungu í svo ríkum mæli, að þeir eru
aðeins fáir, sem komast þar til jafnkvistis.
Þá var hann svo látlaus í öllu viðmóti, að
fyrir það verður hann manni ekki hvað sízt
minnistæður. Sr. Jón Auðuns gat og þess, er
hann jarðsöng Guðmund, að þann mann hefði
hann þekkt yfirlætislausastan af öllum mönn-
um. Þetta eru orð að sönnu. Manndómur og
yfirburðir Guðmundar voru svo augljósir, að
þar þurfti ekkert yfirlæti til, enda mjög fjarri
skapgerð hans.
Eins og svo margir fyrirrennarar og sam-
tíðarmenn Guðmundar vestra, átti hann enga
möguleika til lengra náms í sjómannafræði en
krafizt var til smáskipaprófs, en fyrir dugnað
hans og frábæra skipstjórnarhæfileika var
honum og tveimur öðrum ísfirzkum skipstjór-
um, nafna hans Guðmundi Þorláki og Jóhanni
Eyfirðingi, veitt af ríkisstjórninni full rétt-
indi til að stjórna fiskiskipi af hvaða stærð,
sem væri. Þá var Guðmundur Jónsson og sæmd-
ur fálkaorðunni í viðurkenningarskyni fyrir
störf hans. Fulltrúaráð sjómannadagsráðsins
í Reykjavík hafði og í undirbúningi að heiðra
Guðmund með sérstökum hætti, sem nú varð
um seinan. En mest er um vert, að ekki gleym-
ast þau afrek og það brautryðjendastarf, sem
Guðmundur frá Tungu og aðrir slíkir hafa
unnið til hags og heilla fyrir þjóð sína og
fósturjörð.
Guðmundur varð fyrstur nútíma íslendinga
til að taka upp þúsund ára þráðinn og leita
á Grænlandsmið, í leit að hákarli, þótt skip
hans væri bæði lítið og veikbyggt til þessara
ferða.
En þannig var Guðmundur frá Tungu sí-
fellt leitandi og brjótandi ný viðfangsefni.
Svo, nú allra síðustu árin, hætti Guðmundur
að að stefna skipi sínu út á miðin. Það vissu
allir, að það gat ekki komið af góðu. Hið stóra
og mikla sjómannshjarta Guðmundar frá
Tungu var tekið að bila. Menn gerðu sér þó
vonir um að fá að njóta árverkni og hollra
ráða Guðmundar í mörg ár enn, ef hann færi
vel með sig. Maður, sem talaði við Guðmund
daginn áður en hann lézt, sagði, að hann hefði
verið óvenju hress. Um nóttina andaðist hann
í svefni.
Guðmundur frá Tungu var kvæntur Kristínu
Hansdóttur úr Reykjavík. Hve oft hafði ekki
þessi lífsförunautur í 42 ára sambúð þurft að
bíða milli vonar og ótta eftir því, að Guð-
mundur kæmi heim af sjónum í kolsvörtum
vetrarbyljunum. En alltaf skilaði hann sér
og skipverjum sínum heilum að landi. En nú
hafði hann fyrirvaralaust lagt í sína hinztu
siglingu. Hin árvökru augu þessa afbragðs-
sjómanns voru brostin.
Þau hjón áttu 6 börn. Af þeir eru 3 á lífi,
dóttir Soffía, og synirnir Vilberg rafvirkja-
meistari í „Segli“ og Davíð vélvirki í „Héðni“.
Þau born eru öll kvænt. Þótt bræðurnir, synir
Guðmundar, hafi valið sér annað lífsstarf en
faðir þeirra, þá eru þeir í nánu sambandi við
sjóinn. Vilberg við raflagnir í skip og Davíð
við viðgerðir á skipum. Og þegar fyrsta björg-
unarsveitin á björgunarbátnum „Þorsteini" var
stofnuð, varð Vilberg skipstjóri á bátnum, en
Davíð vélstjóri.
Guðmundur Jónsson fi'á Tungu var vel lát-
inn af öllum, sem þekktu hann. íslenzkir sjó-
menn, bæði samferðamenn hans og aðrir, minn-
ast hans með þakklæti.
Brotið hefur verið blað í sögu íslenzkra sjó-
manna.
Henry Hálfdansson.
21 B
V í K I N □ U R