Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1953, Síða 31
Rússneski
verzlnnarflotínn
Almennt er talið, að stærð rússneska verzl-
unarflotans sé um það bil 2,5 millj. tonn, en
nokkuð er óljóst um nákvæma stærð hans.
Er hér með talinn skipafloti Rússa, sem
annast flutninga á siglingaleiðum innanlands,
eftir fljótum og á innhöfum, þ. á m. Kaspía-
hafinu. Nákvæmar upplýsingar eru fyrir hendi
um flota þeirra, sem siglir á úthöfunum, en
það eru aðeins 70 skip, samtals 420 þús. tonn.
Lloyd’s skráir árið 1948 undir rússneskum
fána 996 skip, samtals 2.087 þús. tonn, þar af
172 skip (211 þús. tonn) mótorskip, hin gufu-
skip. Á árinu 1950 byggðu Finnar 143 skip
fyrir Rússa, en af þeim voru 118 sem stríðs-
skaðabætur. Af 100 skipum, sem í smíðum
voru fyrir Rússa í V.-Evrópu árið 1951, áttu
50 að afhendast á árinu. Af 45 fiskiskipum,
sem pöntuð voru í Svíþjóð, áttu 30 að vera
fullsmíðuð 1951.
1 Danmörku hafa Rússar pantað tvö 13 þús.
tonna olíuflutningaskip, tvö minni og 5 kæli-
skip, 5—6 þús. tonn hvert. Eiga þau að af-
hendast þeim á árunum 1953—1954. Auk þess
eru nú í smíðum í Danmörku átta 250 tonna
skip, ætluð til selveiða. f Hollandi eru 32 skip
í smíðum fyrir Rússa, þar af eru 10 olíuflutn-
ingaskip, 10 hvalveiðiskip og 3 flutningaskip.
Belgía er að byggja 2 skip fyrir Rússa, og
Ítalía, sem nýlega hefir byggt fyrir þá um
20 dráttarbáta, er með í smíðum 2 mótorskip,
4000 tonn hvort.
í rússneska flotanum eru mörg skip af út-
lendum uppruna, aðallega þýzk, og hafa þau
verið afhent sem skaðabætur.
Rússar hafa nýlega tekið í sínar hendur
pólska línuskipið „Sobiesky", sem er 10 þús.
tonn að stærð og verður sett á Napoli—New
York leiðina. Skipið hefur nú verið skírt „Bru-
sia“. Rússar höfðu aflað sér nokkurra farþega-
skipa fyrir stríðið. Þau skip eru ekki útbúin
þeim lúxus og þægindum, sem einkenna mörg
hinna stóru farþegaskip annarra þjóða.
Pravda hefir nýlega tilkynnt, að þýzka stór-
skipið „Robert Ley“, sem er 27 þús. tonn og
var endurskírt „Stalin“, hafi nú verið útbúið
öllum hugsanlegum lúxus og þægindum og ver-
ið sett á alþjóðasiglingaleiðir.
Tankskipafloti Rússa mun alls vera 193,226
tonn, að meðtöldum 2 hvalveiðimóðurskipum,
samtals 27.730 tonn.
Flutningafloti Rússa á fljótum landsins er
sá stærsti í heimi sinnar tegundar, og nær
yfir ýmsar tegundir skipa til vöru- og fólks-
flutninga.
Jafnhliða pöntunum á skipum erlendis frá,
eru allar skipasmíðastöðvar Rússa önnum kafn-
ar við skipasmíðar.
Fiskiflotinn er um 100 þús. tonn. Verzlunar-
flotinn er starfræktur sem ríkiseign og heitir
á þeirra máli „Sovtorgflot“ (Sovétverzlunar-
flotinn). Hefir hann aðalskrifstofur sínar í
Odessa, Leningrad, Vladivostok, og útibú í öll-
um öðrum rússneskum höfnum.
Rússar halda uppi reglulegum siglingum
milli Odessa og Istambul, hafnanna í Palestíinu
og Sýrlandi yfir Alexandríu.
Einnig halda þeir uppi nokkurn veginn föst-
um skipaferðum milli Leningrad og Eystra-
saltshafnanna, skandínavískra hafna og Lond-
on. Þeir ráða yfir siglingaleiðum á Dóná, frá
Sulina til Búdapest og Bratislava.
Hafa þeir sett á stofn skipafélög með aðild
ríkja þeirra, sem eiga lönd að þessum siglinga-
leiðum, en það eru Ungverjar, Rúmenar og
Búlgarar.
Lausl. þýtt af G. J.
íslenzkir bátar
lmúnir Grenaa-vélum
M/b. „Lagarfoss“ VE. 292, 27 tonn
M/b. „Sjöstjarnan“ VE. 92, 55 tonn
M/b. „Erlingur“ III VE. 25, 66 tonn
M/b. „Sigurfari“ VE. 138, 46 tonn
M/b. .„Tjaldur“ VE. 291, 53 tonn
M/b. „Hellisey“ VE. 2
M/b. „Grœdir“ OF. 3, 51 tonn
M/b. „Sævaldur“ OF. 2, 53 tonn
EinkaumboðsmaSur á íslandi fyrir
Grenaa vélar:
Magnús Ó. Ólafsson
Hafnarhvoli . Sími 80773
V I K i N G U R
219