Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1963, Side 6

Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1963, Side 6
GUÐLAUGUR SIGURÐSSON: U AU Hákarlaveiðar voru um langt tímabil veigamikill þáttur í at- vinnulífi íslenzku þjóðarinnar og gaf talsvert í aðra hönd. En það var ekki heiglum hent, að sækja þá veiði af kappi á litl- um og ófullkomnum seglskipum, er háðu oft harða baráttu við hafís, hríðarbylji og stórsjó. En hákarlaskipin þó lítil væru, voru flest góð sjóskip og skipstjór- amir afburða sjómenn. Helztu hákarlamiðin voru það langt undan landi. að þegar þangað var komið sýndist landið að mestu eða öllu sokkið í sjó, að- eins hæstu fjallatindar er næst- ir voru — voru til að sjá í heiðskíru veðri eins og litlar þúfur yzt við sjóndeildarhring- inn. Fjölsæknustu hákarlamiðin voru Strandagrunnið út af Homi (Hornbjargi), Barðagrunnið út af Barða vestan ísafjarðar- djúps, Skagagrunnið út af Skaga vestan Skagafjarðar. Grímseyj- arsund milli Grímseyjar og Kol- beinseyjar. Rauðunúpagrunn út af Melrakkasléttu og fleiri. Venjulega var farið til skips, eins og það var kallað í byrjun aprílmánaðar. Hákarlaskipin voru sett á land á haustin, skipshöfnin flutti því í skipið uppi á landi, oft var kuldaleg aðkoman. Fyrsta verkið var að bera eða draga eldivið í skipið og kveikja upp í eldavélinni og hita vistar- vem skipverja og svokaffið, sem var að mestu fæðið á hákarla- skipunum. Oftast voru 12 menn á hverju skipi, 8 í lúkar en 4 í káetu, skipstjóri, stýrimaður og 2 aðrir. Útgerð skipsins lagði til, eldivið,, veiðarfæri, og beitu. Skipshöfnin lagði til kaffi og ex- port, hrísgrjón, baunir og ein- hvern skammt af kjöti á mann, hvað það var mikið man ég ekki. Skipverjar höfðu í skrínukosti, sykur og brauð, (svokallað beinakex,) skonrok og smjörlíki, sumir höfðu með sér að heiman heimabakað rúgbrauð, smjör, harðfisk og hákarl, en aðrir að- eins harðabrauðið, sem kallað var. Fæðið á hákarlaskipunum var því fremur fábreytt eink- um vegna þess að enginn sér- stakur kokkur var ráðinn áþau til að elda ofan í skipshöfnina. Fæðið var því eingöngu kaffi og brauð, þegar verið var að veið- um, ekki tími til að elda annað, og þá aðeins um hver vakta- skipti. Matlíf var heldur skárra, þegar legið var við land, þá var einhver valinn úr hópnum til að sjóða kjötsúpu eða baunir, stundum var fiskað í soðið. Næstu daga á eftir að skips- höfnin flutti í skipið, var farið að búa það til veiða, slá undir seglum, stinga saman kaðla, end- urnýja talíur, bika vanta ogveg- línur,. endurnýja allt sem endur- nýja þurfti, því næst voru veið- arfæri og áhöld borin í skipið. Að því búnu var skipið sett á flot. Til undirbúnings þess var vel vandað, skipið látið renna fram á þar til gerðum hlunnum, vel smurðum með grænsápu. Trébúkkar hæfilega margir voru hafðir undir báðum hliðum þess. Svo kallaðir toppstagir voru festir ofarlega um möstur skipsins og strengdir út frá þeim til beggja hliða til aðhalda skipinu réttu á kjölnum, skip- inu var svo ýtt á talíu og spil- krafti fram í flæðarmál og hrundið á flot, þegar henta þótti. Það spáði fararheill ef skipið rann teinrétt á flot, en ugg og ótta ef því hlekktist eitt- hvað á. Þegar skipið var komið á flot, var farið að flytja í það kjölfestu á skipsbátnum. Smá- grjót var tínt saman í hrúgur, þegar það var búið röðuðu skips- menn sér með hæfilegu milli- bili á svæðið milli grjóthrúg- unnar og skipsbátsins og grjót- inu kastað frá manni til manns, þar til báturinn þótti fullhlað- inn, var honum þá róið fram að skipshlið og sami leikurinn hófst á ný, að maður rétti manni upp úr skipsbátnum og ofan í lest skipsins. Þar til kjölfestan þótti hæfilega mikil. Það var venja eða lögboðin skylda að senda tvo skipaskoðunarmenn um borð í skipið til að athuga, hvort það væri í haffæru standi, áður en það legði úr höfn í fyrstu veiði- för. Ein slík skoðun er mér minni- stæð. Það bar til tíðinda eitt sinn er seglskipið „Siglnesing- ur“ var albúið til veiða, að tveir skipaskoðunarmenn komu um borð, annar frá útgerðar- félagi skipsins, hinn úr flokki uppgjafa skipstjóra. Þegar þeir voru komnir um borð hófu þeir skoðunina með því að horfa vel og vandlega upp í reiða skips- ins, sennilega til að athuga kaðla, talíur, seglaumbúnað og fleira, að því búnu fór sá er var frá útgerðinni ofan í aðra lúk- ars-stigatröppu og leit þaðan yf- ir mannaplássið í Lúkamum, en hinn leit á meðan ofan í lestina og lifrarkassana, svo gengu þeir til káetu og settust þar að kaffi- drykkju — Gestrisni íslenzkra sjómanna stóð þeim sem öðrum til boða. Sjálfsagt hafa þeir YÍKINQUR 174

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.