Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1963, Síða 8

Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1963, Síða 8
Hákaxlaöngullinn nefndist „sókn“. Við sóknina" var fest keðju, sem kölluð var „sóknarhlekkir“. 1 efri enda keðjunnar var svo vaðsteinninn festur. saman til að gera það litar og bragðsterkara. Selspikið var einnig saltað niður í olíuföt eða tunnur af mestu vandvirkni með selskinn- inu á svo það tyldi betur á sókn- inni, varast þurfti að selspikið yrði þrátt, „Gráni“ vildi ekki líta við því þannig tilreiddu. Hvert hákarlaskip fékk til beitu sitt olíufatið af hverju, selspiki og hrossakjöti og eina brenni- víns eða rommflösku til að dreypa á hrossakjötið, þegar kjötfatið var opnað og sérstak- lega spikið. Með þessu góðgæti var hákarlasóknin bugfyllt þannig, — annarhvor biti var hrossakjöt og hinn selspik, að því búnu lét vaðarmaðurinn há- karlavaðinn renna út, þar til vaðsteinnin kenndi botns, tók vaðmaðurinn þá grunnmálið þ.e. dró vaðsteininn hæfilega langt frá botni og settist undir vað- inn þ.e. hafði hönd á vaðnum, en keypaði ekki eins og fyrir þorsk. Fjórir vaðir voru venju- lega hafðir úti og fjórir menn undir vöðum og tveir lausingj- ar til að hlaupa á með vaðar- mönnunum. Auk þess áttu þeir að hita vaktarkaffið svonefnda fyrir vaktaskiptin. Oft virtist „Gráni“ f jærstadd- ur þegar vaðirnar komu til botns, en hann var sagður mjög lyktarnæmur og mun því hafa runnið langar leiðir á þefinn, sem honum virtist geðjast svo vel að. Stundum leiddist vaðar- mönnunum eftir því að ,,Gráni“ gerði vart við sig, þá kváðu þeir stundum hvatningu til „Grána.“ „Þó ég sé magur og mjór á kinn“ „mana ég þig sláni“ „Komdu nú á krókinn minn“ „kjaftastósi gráni“ Ekki er ég trúaður á að „Gránr' hafi hlýtt þessari áskorun kvæðamannsins. Hitt finnst mér líklegra, að hann hafi verið þeim mun næmari fyrir lykt- inni af hrossakjötinu og romm- inu. Loks kom að því að „Gráni“ nálgaðist matborðið sem vað- mennirnir höfðu sett fyrir hann. Til að byrja með fór hann að engu óðslega, togaði aðeins hægt og lauslega í, hefur máske ótt- ast að einhver brögð væru í tafli og væri bezt að fara var- lega, en reyndir vaðmenn þekktu og skyldu upp á sínar tíu fing- ur allar kenjar og duttlunga „Grána“ og biðu þess rólegir að hann gengi sjálfur í gildruna, þ.e. að hann gæddi sér á krás- inni með því að renna sókninni með öllu ofan í maga. En þá tók vaðarmaðurinn líka hraust- lega á móti og hóf að dragaupp vaðinn og kallaði á annan laus- ingjann sér til hjálpar. Þegar hákarlinn kom upp að skips- hliðinni var hann mænustung- inn með tvíeggjuðum sting vel beittum, með alinnarlöngu blaði er nefnist „drepur,“ að því búnu var hákarlatalíu-króknum lagt undir tálknin og hákarlinn hal- aður upp í skipsvantinn, þar var hann ristur á kviðinn með þar til gerðri skálm. Lifrin tekin úr honum og sett ofan í lifrarkass- ann. Hákarlsskrokknum var svo hleypt niður og látinn hverfa í hafið. Gráðugir félagar hans þar neðra átu hann með góðri lyst. Þannig var haldið áfram, þar til búið var að fylla skipið af lifur, en það taldist mikil heppni í þá daga. Stundum voru stærstu há- karlarnir hirtir líka. Ef rúm var til fyrir þá í skipslestinni, var þá kjölfestunni fleygt til að VÍKINGUK 176

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.