Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1963, Page 26

Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1963, Page 26
Við sólglit og hvíta bárufalda Landnáma segir frá land- námsmönnum í Skaftafellssýslu, og ber þar hæst Ingólf Amar- son, sem tók land við höfða þann, er síðar er við hann kenndur, Ingólfshöfði. Hjöi-leif bar vestur að landi við höfða, einnig sem við hann er er kenndur, Hjörleifshöfða. Þar féll hann fyrir þrælum sínum og var heygður, svo sem Land- náma segir. En Ingólfur varð eigi langær í öræfum, eins og sagan greinir, hann vildi eigi bregðast trú feðra sinna. — Það, að leita öndvegissúlnanna, þar sem Goðin létu þær reka að landi. — Það varð í vík einni inn úr Faxaflóa, Reykjavík. Þá getur Landnáma fleiri, svo sem Ketils hins fíflska, er land nam í „Skógarhéraði," það er síðar heitir „Síða,“ og bjó að Kirkjubæ. Ketill var kristinn, og sagt var, að þar mættu eigi heiðnir menn búa síðan. Þá er og Reynir Björn nefnd- ur landnámsmaður, sem land nam milli Hafursár og Kerl- ingarár og bjó að Reyni. Fleiri landnámsmanna getur Landnáma í Skaftárþingi, þótt eigi sé þeirra hér getið. Öll var ströndin hafnlaus, þá er landnámsmennina bar að landi á þessu landssvæði, og út- hafið vökult og ógnþrungið, er vindar voru suðlægir sem tíðum er enn í dag. Þá hefir þótt sýnu meir skjól syðst í landnámi Reynis Björns, því að þar er þó eitt örnefni, sem „höfn“ er nefnt. Það er Þórshöfn, sem er austan undir Reynisfjalli og Þórshafn- arklakkur. Heitir þar svo enn í dag. Svo byggðist héraðið, og land- ið fékk nöfn eftir atvikum og staðháttum þeim, er þess nutu síðan. En hafnleysið hefir alla tíð verið hið sama og þá, er hina fyrstu landnema bar að landi, aðeins hægt að ýta fleytu frá „sandi,“ þá er staðvindur og norðanáttir hafa ríkt. Og þess- ar fleytur byggjenda Skaftár- þings um aldir verið sniðnar eftir vexti staðhátta. Það að orka mannsins ein réði við far- kostinn, hvort heldur var á sjó eða við landtök. Skipin máttu ekki vera stærri en svo, að þau væru viðráðanleg vissri tölu manna, sem með þau fóru, því ávallt varð að búast við því, að brimaði fyrr en varði. Sjósókn við slíkar aðstæður var mjög þröngur stakkur skor- inn, og ekki mun hafa þótt fýsi- legt að senda eða semja um verzlun kaupskipa á þessari hafnleysu í Skaftárþingi. Enda urðu héraðsbúar allt fram und- ir lok 19. aldar að sækja verzl- un út frá héraðinu um óra vegu, eyðisanda og máske óbrúuð stórvötn, allt upp í 300 km vega- lengd, svo sem til Eyrarbakka og vestur yfir Hellisheiði. í þessum ferðum var farartækið aðeins hesturinn. Það lætur því að líkum, að slíkir erfiðleikar voru ekki á allra færi að glíma við, og lítil búbót myndi í dag þykja mörg- um, það sem heim í hlaðið, fær- VÍKINGUR 194

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.