Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1963, Side 29

Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1963, Side 29
IHUGUN A SIÐDEGISKVELDI Mai’gar kynslóðir hafa vitað „að betra er að byrgja brunn- inn, áður en barnið er dottið ofan í hann.“ Þrátt fyrir það hafa margir brunnar staðiQ opnir og boðið alls konar hættum heim, ekki aðeins hinir gömlu, djúpu neyzluvatnsbrunnar, heldur alls konar mannvirki og tæki, hálf- kláruð verk, sem valdið hafa og valda enn tíðum slysum, sem er erfitt að uppræta að fullu. Hið tvíþætta starf Slysa- varnarfélags íslands að koma í veg fyrir slys og að skipuleggja björgun mannslífa, eftir að ó- happið er skeð, er alþjóð svo kunnugt, að óþarfi er að kynna það hér. Þó er ekki hægt að nefna þetta félag án þess að þakka því þann mikla skerf, sem það hefur áunnið þann tíma er það hefur starfað. Ekki verður gerð hér nein til- raun til þess að vega eða meta hvor aðferðin í starfi félagsins, sem hér hefur verið minnst á, og talin eru aðalverkefni þess, eru nauðsynlegri, þ.e. varnir eða björgun. Báðar greinir hafa orðið þjóðinni heilladrjúgar, þótt hin síðari, björgun úr bráðri hættu sé, ef til vill enn áþreifanlegri og eigi sinn bróð- urpart í vinsældum félagsins, og hróðri þess meðal annarra þjóða. Hitt er víst að þjóðin vill engu sleppa úr starfsemi þessa ástsæla félags. Tilgangur þessa greinarkoms var hins vegar ekki sá að ræða um störf S.V.F.Í., heldur um hina „opnu brunna,“ sem sífellt hrúgast upp í okkar þjóðfélagi. Eru þá vissulega efst í huga mínum þau tíðu og óskiljanlegu sjóslys, sem nú eru orðin of mörg. Stórum og vel útbúnum skip- um hefur bókstaflega hvolft, og þau sokkið á nokkrum mínútum, VÍKINGUR án þess að frambærilegar orsak- ir væru upplýstar. Það er ekki aðeins hinn sauð- svarti almenningur, sem skilur ekki þessa þróun, því að svo virðist sem hinir opinberu að- ilar, sem þessi mál heyra undir, standi ráðalausir um orsakir slysanna, og á hvern hátt eigi að mæta þeim með gagnráðstöf- unum. Þegar málshátturinn um opnu brunnanna varð til, hafði þjóðin engin tök á að hafa öll börn og aðrar lifandi verur í nælonföt- um sem loftfylltust sjálfkrafa og forðuðu því frá drukknun, enda meira fyrir tæki en að setja lok á brunninn. Þessi slys, sem nú hefur ver- ið minnst á, minna óþægilega á hinn opna brunn. Viðbrögðin gegn slysum mega ekki vera neitt fálm. Hér verð- ur að loka brunnunum, ekkert annað kemur að gagni. Það er íáránleg tillaga að ætlast til þess að allir íslenzkir sjómenn séu þannig klæddir, að þeir geti ekki sokkið, þótt þeir lendi í sjónum. í aldaraðir hafa íslendingar stundað sjó, en aldrei á stærri, betri né glæsilegri útbúnum skipum en nú. Þeir hafa aldrei verið sjóhræddir, og trú mín er sú að erfitt verði að fá þá til að klæðast einhverjum geimfara- búningi, þótt þeir séu skráðir á skip. Ef svo yrði, væri ekki ósennilegt að handtök þeirra og hreyfingar allar breyttust við tilkomu búningsins. Hér verður að leggja alla á- herzlu á að forða slysi. Nælon- belgir og gúmmbátar eru vissu- lega sjálfsögð öryggistæki á hverju skipi, en þegar við send- um unga og sterka menn til sjós, verðum við að hafa það í huga, að þeir eiga að vinna á sjó en ekki í sjó og búa svo um hnútana að þeir þurfi helzt ekki að lenda í honum. Því þarf að setja traust lok á brunninn. Elliði svarti. „Kóngur vill sigla. en drottningin vill rá'öa,“ sagði Lási.

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.