Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1973, Page 47
komin sem nauðsynlegt er
fyrir skipstjórnarmenn.
Rétt til að vera stýrimaður í
innanlandssiglingum á fiskiskipi
allt að 120 rúmlestir hefur sá
einn, sem fengið hefur hið minna
stýrimannsskírteini á fiskiskipi.
Sá einn getur fengið hið minna
stýrimannaskírteini á fiskiskipi,
sem:
a. staðizt hefur fiskimannapróf
1. stigs eða farmannapróf 1.
stigs við Stýrimannaskólann
í Reykjavík eða í Vestmanna-
eyjum eða við námskeið Stýri-
mannaskólans í Reykjavík úti
á landi.
b. Hefur verið eftir 15 ára ald-
ur 24 mánuði háseti á skipi
yfir 12 rúmlestir eða 6 mán-
uði stýrimaður eða skipstjóri
á skipi yfir 12 rúmlestir.
c. Sé minnst 19 ára gamall.
d. Sannar með læknisvottorði, að
sjón hans og heyrn sé svo full-
komin sem nauðsynlegt er
fyrir skipstjórnarmenn.
1 29. gr. laganna stendur: Brot
gegn lögum þessum varða sekt-
um allt að kr. 20.000.00. Sektir
renna í ríkissjóð.
Með mál út af brotum á lögum
þessum skal farið að hætti opin-
berra mála.
1 undanþágumálum fyrr-
greindra stétta ríkir vægast sagt
megnasta vandræðaástand, sem
hlýtur að hafa það í för með sér
að skólar og námskeið hreinlega
leggjast niður og lokast. Það ligg-
ur nærri að hérumbil helmingur
af fiskiskipaflota landsmanna er
rekinn með undanþágumönnum
með lítið og sumir með alls ekkert
próf. Stórir bunkar af undan-
þáguleyfum l'iggja fyrir hjá
skráningarstjórum allt um kring
um landið. Sú hefð komst á að
undanþáguleyfisveitingar voru
ekki afgreiddar úr Samgöngu-
VÍKINGUR
ráðuneytinu nema leitað væri
fyrst umsagnar viðkomandi stétt-
arfélaga innan F.F.S.Í nú er
framkvæmdin á þann veg að þær
eru afgreiddar án nokkurrar um-
sagna fyrrgreindra fagfélaga
beint úr ráðuneytinu sjálfu, og
frekar sótt um umsögn frá verka-
lýðs og sjómannafélögum við-
komandi staða. Allmargar eru
þessar undanþágubeiðnir þannig
úr garði gerðar að aðeins nafns,
fæðingardags og árs er getið,
sjaldan hve lengi viðkomandi hef-
ur starfað á sjó, eða hafi nokkuð
prófskírteini og því síður að fylgi
með augn- eða heyrnarvottorð.
Fyrir réttindi greiðast svo kr.
200,00.
Heyrzt hefur að tímabært sé
að stofna félög undanþágumanna,
og liggur þá nokkuð annað fyrir
en að Samgöngu- og félagsmála-
ráðherra berji það í gegn á þingi
nú í vetur. Það er engin furða
þó hann hafi sagt með vandlæt-
ingarsvip orðin: Á a‘Ö stoppa flot-
ann og svelta fólkiö í sjávarpláss-
unum.
Það er tímabært að alþjóð viti
hvaða ófremdarástand er orðið
hér í þessum málum og full á-
stæða til að grípa í taumana, áður
en í algjört óefni er komið. Benda
má á að t. d. er Stýrimannaskóli
Reykjavíkur ekki fullsetinn í ár,
og að mikið auglýst skipstjórnar
og vélstjórnarnámskeið á fsa-
firði, sem til stóð að halda í vet-
ur, varð að aflýsa vegna ónógrar
þátttöku, sem ekki er nema eðli-
legt, því að hví skyldu menn sækja
skóla, þegar hægt er að kaupa
réttindi fyrir 200,00 krónur uppí
ráðuneyti. Sama verður með
stýrimannaskólana í framtíðinni
þeir hreinlega lokast af sjálfu
sér vegna ónógrar þátttöku af
fyrrgreindum ástæðum. Þetta er
ekki glæsileg mynd, þegar alltaf
er verið að tala um að menntun sé
Loftur Júlíusson
sjálfsögð og nauðsynleg á öllum
sviðum. Til hvers er verið að
setja lög um atvinnuréttindi, þeg-
ar þau eru þverbrotin, og því
svarað til, á að stoppa flotann
og svelta fólkið í sjávariilássun-
um. Raunverulega væri það rétt
að stoppa flotann og kanna málið
niður í kjölinn og gera úttekt á
hver hin raunverulega ástæða sé
fyrir slíku ófremdarástandi, sem
fer vaxandi. Vitað er að fjöldi
fyrrgreindra fagmanna vinna við
allskonar störf í landi, sem eru
betur launuð en á sjó. En lausn-
in er ekki fundin með því að veita
bara ótakmarkaðar undanþágur
til að halda flotanum gangandi í
framtíðinni. Ég held að það þekk-
ist hvergi nema hér á fslandi, þó
víða væri leitað, að í nokkrum
faggreinum öðrum en til skip-
stjórnar og vélstjórnar séu veitt-
ar undanþágur til starfa. T. d.
má ekki veita undanþágur við að
aka bifreiðum, ekki til neinnar
iðnaðarvinnu, lækna eða hjúkr-
unarstarfa þó að vöntun sé gífur-
leg á fólki til slíkra starfa allt
um kring um landið, þó eru skip-
stjórnarmenn með fjölda manns-
lífa í hendi sinni við störf á sjó,
og svona má lengi upp telja.
Á næstu árum koma til lands-
ins mörg ný skip með fullkomn-
ari tækjaútbúnaði ofandekks og
47